Opið hús: Borgarholtsbraut 24, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Íbúðin er skrá 125,3 fm hjá HMS og er bílskúrinn 25,1 fm þar af.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn um sameiginlegan inngang með neðri hæð og upp teppalagðan stiga.
Uppi á stigapallinum er fatahengi og útgengt þaðan út á suður svalir og er stigapallurinn hluti af fermetrum íbúðarinnar.
Hol er rúmgott og með parketi á gólfi.
Eldhúsið er stórt og bjart með góðri viðarinnréttingu, miklu skápa- og vinnuplássi, flísar á gólfi og milli innréttinga.
Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús og geymsla.
Stofan og borðstofan eru afar bjartar með stórum gluggum til suðurs. Parket á gólfi. Möguleiki er að bæta við fjórða herberginu í hluta stofunnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með stórum sturtuklefa og upphengdu salerni.
Hjónaherbergið er stórt og rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö og er annað minna. Parket á gólfi.
Bílskúrinn er rúmgóður og með nýrri rafdrifinni bílskúrshurð. Þak hans var endurgert og hækkað Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum.
Garðurinn er vel gróinn og skjólsæll. Hann snýr í suður af húsinu og er sameiginlegur með neðri hæð.
Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað í húsinu og íbúðinni:
2004 - Skipt um stofuglugga
2014 - Baðherbergi endurgert
2015 - Fráveita endurnýjuð út í götu
2016 - Skipt um glugga á austurhlið og á baðherbergi
2016 - Þak yfirfarið og lagað
2017 - Húsið klætt að utan
2020 - Neysluvatns- og hitaveitulagnir yfirfarnar og endurnýjaðar þar sem þurfti.
2022 - Bílskúrsþak endurnýjað og það hækkað.
2022 - Dren við húsið á norðurhlið endurnýjað
2022 - Svalahurð íbúðar endurnýjuð
2023 - Sameiginlegur geymsluskúr settur upp á lóðinni.
Hér er einstaklega góð og falleg eign á ferðinni á besta stað á Kársnesinu með miklu útsýni til suðurs, í húsi sem hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin. Þessi staðsetning er afar vinsæl og sjaldan sem koma svona góðar eignir á sölu á svæðinu. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020 eða á netfangið hallgrimur@trausti.is, og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.