Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Kjarrhólmi 12

200 Kópavogur

64.900.000 kr.

773.540 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2063249

Fasteignamat

61.750.000 kr.

Brunabótamat

46.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
83,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 11. febrúar 2026 kl. 12:15 til 12:45

Opið hús: Kjarrhólmi 12, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. febrúar 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Lýsing

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Kjarrhólmi 12 íbúð merkt 102 fastanúmer 2063249 200 Kópavogur.

Góð 3ja herbergja 84,4 fm. íbúð á 1.hæð íbúð með þvottahús innan íbúðar og góðu útsýni við Kjarrhólma 12 í Kópavogi.
Íbúðin er skráð 84,4 fm, þar af er 9,3 fm. sér geymsla í kjallara. 
Eignin er vel staðsett við Fossvogsdalinn í einstaklega fallegu umhverfi.
Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Nánari lýsing: 
Forstofa/hol: Er með góðum fataskáp, það eru flísar á gólfi í forstofu og parket á holi.
Eldhús: upprunaleg innrétting,borðkrókur við gluggann, flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og glæsilegu útsýni.
Hjónaherbergi: Er með fataskáp og parketi á gólfi. Frá hjónaherbergi er gengið út á skjólgóðar suðursvalir.
Barnaherbergi: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með ljósri innréttingu, baðkari með sturtu,flísar á gólfi.
Þvottahús: Er innan íbúðar með máluðu gólfi og hillum.
Geymsla: 9,3 fm sérgeymsla er í kjallara.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
-Skipt um gler á norðurhlið 2019.
-Svalirnar voru slípaðar og sett á þær epoxy árið 2023.
-Farið í tréverkið á suðurhlið og klæðningu (2022/2023)
-Stigagangurinn málaður 2019.
-Nýtt teppi sett á stigagang 2021.
-þakið á allri lengjunni var tekið í gegn 2024-2025.
-Skipt var um glugga á norðurhlið 2025 þar sem þess þurfti.

Um er að ræða góða og vel skipulagða eign á eftirsóttum og rólegum stað við útivistarparadísina Fossvogsdalinn. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6