Opið hús: Auðbrekka 16, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. febrúar 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:45.
Lýsing
Gæludýrahald leyft í húsinu.
Smeltu hér til að sjá videó af eigninni!
Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 er skv. HMS 84.900.000kr
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg.fasteignasala í síma 661-6021 netfang, hreidar@betristofan.is
Eignin er staðsett í blandaðri byggð með íbúðarhúsum asamt atvinnu- og þjónustuhúsnæðum í bland. Mjög góð staðsetning í Kópavoginum með leik-, grunn- & framhaldsskóla í nágrenninu og þá er ekki mjög langt í háskólanna. Þá er ekki langt í rómað og fjölbreytt íþrótta- og tómstundarstarf Breiðabliks og HK. Góð tenging við stofnbraut. Öll helsta verslun og þjónusta allt í kring. Þá eru útivistarperlurnar í Fossvoginum og í Kópavogsdalnum í nágrenninu með fallegum hjóla- og gönguleiðum.,
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 123.4 fm. Allir fermetrar eignar eru innan íbúðar.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Gengið inn á vesturhlið hússins. Sameiginlegur með 1. og 2. hæð. Aðeins nýtt af íbúðinni sem stendur. Fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli fyrir framan inngangshurð.
Alrými: Komið inn í afar rúmgott, opið og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús: Opið og samliggjandi stofu. Eldhús endurnýjað árið 2017. Innrétting U laga með góðu skápa og vinnuplássi. Ofn í vinnuhæð og spanhelluborð, aðstaða fyrir uppþvottavél og tvöfalldan ísskáp (ísskápur getur fylgt með). Aðstaða fyrir 4-5 barstóla við eldhús. Fallegt, vel hannað og praktískt hannað eldhús.
Búr: Við hlið eldhúss, innaf borðstofu með rennihurð. Gott geymslupláss með upphengdum hillum.
Stofa: Afar rúmgóð, opin og björt samliggjandi stofa og borðstofa, opin við eldhús. 3M lofthæð (í allri eigninni) og falleg gluggasetning með stórum gluggum. Stórbrotið úrsýni yfir Reykjavík, út á Fossvoginn og út á Esjuna.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2023 á vandaðan og fallegan máta. Innbyggður sturtuklefi með glerhurð, baðkar, upphengt klósett ásamt baðinnréttingu með skúffum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ofan á skúffueiningu. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum með terrazzo munstri að undanskyldum einum vegg sem er með sægrænum subway flísum á vegg. Afskaplega rúmgott, vel hannað og fallegt baðherbergi.
Svefnherbergi I: Innaf stofu. Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Í suðurenda í búðar. Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á suðursvalir.
Gólfefni: Plankaparket á öllum rýmum að undanskyldu baðherbergi sem er flísalagt.
Hita og rafmagnskostnaður: Inntök hita er staðsett í rými 0102 og einnig hitamælar. Sér hitamælar fyrir hverja eign. Rafmagn fyrir allar eignir eru á sér mælum og eru rafmagnsmælar staðsettir í viðkomandi eignum.
Við Auðbrekkuna er öll helsta verslun og þjónusta í nánasta nágrenni. Nýbýlavegurinn hefur blómstrað síðustu ár, fjölmargar verslanir, kaffihús og veitingarstaðir er þar að finna og fjölbreytninni hefur aldrei verið meiri. Hamraborgin í nokkra mínútna göngufjarlægð með þjónustu- og verslunarkjarna. Þá er ekki langt í Smáralindina og í Kringlunna með allt sem þær verslunarmiðstöðvar hafa upp á að bjóða. Lágvöru matvörurverslanir í nágrenninu. Afar miðsvæðis með góðar tengingar við stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veita:
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.