Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1943
85,3 m²
2 herb.
2 baðherb.
Þvottahús
Lýsing
Fasteignasalan Miðborg kynnir fallegt 85,3 fm. verslunar/þjónusturými á 1. hæð að Rauðarárstíg 1 í Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-02, með fasteignanúmer 200-9594, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Um er að ræða bjart, fallegt og mikið endurnýjað 56,8 fm. verslunar- eða þjónusturými með sérinngangi, ásamt tveimur samtals 28,5 fm. geymsluherbergjum með gluggum í kjallara.
Á verslunarrýminu eru miklir gluggar sem snúa að götunni. Rýmið er parketlagt og með góðri lofthæð. Stór skrifstofa eða fundarherbergi er í rýminu ásamt nýlega uppgerðu baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og glugga. Innangengt er í sameignina og bakútgangur frá henni á baklóð til suðurs.
Stór geymsluherbergi í kjallara sem tilheyra rýminu, samtals 28,5 fm. eru bæði með glugga. Lítil sameiginleg snyrting er í kjallara. Herbergin þarfnast viðhalds, en talsverð rakaummerki eru í veggjum. Rætt hefur verið á vettvangi húsfélagsins um að drena með húsinu, til að komast fyrir rakamyndnun í kjallaraveggjum.
Eignin er laus við kaupsamning!
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. mar. 2017
16.750.000 kr.
24.900.000 kr.
85.3 m²
291.911 kr.
27. feb. 2015
12.600.000 kr.
41.000.000 kr.
207.5 m²
197.590 kr.
15. jan. 2014
12.450.000 kr.
30.000.000 kr.
207.5 m²
144.578 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026