Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
raðhús

Víðilundur 15

600 Akureyri

79.900.000 kr.

757.346 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151646

Fasteignamat

76.750.000 kr.

Brunabótamat

65.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
105,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Víðilundur 15

Mjög skemmtileg þriggja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á afar vinsælum stað þar sem stutt er í ýmsa verslun og þjónustu og þá sérstaklega fyrir eldri borgara. Eignin er samtals 105,5 en auk þess er skúr á lóð sem er um 12 fm. og er hann óeinangraður.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, búr, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. 

Forstofa er með flísar á gólfi, skápum og opnu fatahengi
Stofa er opin og björt með parket á gólfi, upptekin loft og útgengt um rennihurð út á verönd sem snýr til suðurs. 
Eldhús er í opnu rými með stofu og parket á gólfi. Þar hefur eldhúsinnrétting verið endurnýjuð með afar skemmtulegum hætti. Mjög mikið skápa- og bekkjarpláss, innbyggður ísskápur og 45 cm uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og örbylgjuofn fyrir ofan hann. Þá er einnig hægt að sitja við enda innréttingar sem snýr að stofunni. 
Búr er inn af eldhúsi, þar er parket á gólfi, góðar hillur á veggjum og opnanlegt fag. 
Gangur er með parket á gólfi, á gang eða við eldhús er einnig góður skápur sem nýtist vel. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upprunaleg innrétting en með miklu skápaplássi. Sturta er með nýlegum vængjahurðum, upphengt salerni sem var endurnýjað nýlega, stór handklæðaofn og opnanlegt fag.
Þvottahús og bakdyrainngangur er með flísar á gólfi, þar eru mjög góð innrétting og mikið skápapláss, stæði fyrir þvottavél og þurrkara og vaskur. 

Geymsluskúr á framlóð er um 12 fm., óeinangaður en leitt í hann vatn og rafmagn er bæði inni í skúrnum og tenglar utan á honum líka. Hægt að halda vel frostfríum með t.d. olíufylltum rafmagnsofni. Hann er byggður á steypta plötu og festur niður á öllu hornum. 

Annað:
-Skipt um gólfefni og settur gólfhiti 2023. Gólfhiti í allri eigninni fyrir utan búr inn af eldhúsi
-Skipt um gler eftir þörfum á síðustu þremur árum
-Loft í alrými nýlega hvíttað
-Eldhús endurnýjað 2023
-Jarðvegsskipti á öllu planinu fyrir framan hús og stétt og þriðja bílastæði bætt við 2025 
-Allar framkvæmdir unnar af fagfólki
-Lýsing í stofu getur verið tengd í síma en líka á rofum á vegg
-Hiti í stórum hluta stétta og í bílaplani fyrir framan hús
-Verönd er sunnan við hús, hún er hellulögð og þar er markísa sem nær vel fram á pallinn og fylgir með. Auk þess er grasblettur sem nær um 5 metra frá húsi 
-Þjónustumiðstöð eldri borgara í Víðilundi er í næsta nágrenni en þar er boðið upp á ýmsa þjónustu og afþreyingu

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. mar. 2023
55.950.000 kr.
59.900.000 kr.
105.5 m²
567.773 kr.
7. jún. 2019
38.200.000 kr.
44.100.000 kr.
105.5 m²
418.009 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone