Lýsing
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn um sameiginlegan inngang og anddyri með jarðhæðinni og er stigi frá anddyrinu upp í eignina.
Þegar komið er upp stigann tekur við opið og bjart rými með mikilli lofthæð.
Rýmið skiptist upp í eldhús, alrými, herbergi og baðherbergi.
Milliloft er í eigninni sem er stórt og rúmgott og með yfirsýn af hæðinni yfir alrými. Auðvelt væri að stúka milliloftið niður í eitt eða fleiri herbergi. Opnanlegur þakgluggi er á milliloftinu.
Herbergi inn af alrými er stórt og rúmgott með góðum gluggum og mikil lofthæð.
Baðherbergi er með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Flíslagt í hólf og gólf.
Eldhúsið er hluti af alrými með hvítri fallegri innréttingu, innbyggðum ísskáp og stórri eyju.
Alrýmið er rúmgott og mjög bjart með stórum glugga og góðu útsýni.
Næg bílastæði eru beint fyrir utan eignina.
Húsið er klætt að utan með áli og er því viðhaldslítið. Í húsinu er fullkomið brunavarnarkerfi (sprinkler) og hafa brunavarnir verið teknar út af slökkviliði og húsfélagið er með samning um brunavarnafulltrúa fyrir húsið allt. Ný eignaskiptayfirlýsing er tilbúin fyrir húsið en henni hefur ekki verið þinglýst.
Hér er frábær eign á ferðinni fyrir þá sem vilja vera nálægt menningu miðbæjarins og sjónum og um leið út af fyrir sig. Þessi eign er einstök og hefur yfirbragð "New York loft" íbúðanna sem prýða Manhattan. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020, eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.
Trausti Real Estate and Hallgrímur Hólmsteinsson registered real estate broker, introduce Fiskislóð 45, 110,3 square meter property/warehouse that is designed in a loft style with extremely high ceilings and large windows. The location in Grandi is great with supermarkets, restaurants and downtown Reykjavík only 10-15 minutes away. Grandi is centered around a working harbor and is a vibrant and very lively area. You got to see it to believe it and book a viewing with Hallgrímur Hólmsteinsson phone +354-896-6020 or email to hallgrimur@trausti.is
Description:
The entrance is joint with the ground floor with a private staircase leading up to the property.
At the top of the stairs you enter an open and bright space that is the main floor. Here you find a kitchen, bathroom, large open area and one separate room.
From the main open space you have a staircase to the half floor overlooking the main area and it has a large skylight. This are can easily be devided into one or even two rooms/offices.
Room on the main floor is large with floor to ceiling windows and a high ceiling.
Bathroom has a shower and tiled walls and floor.
Kitchen is a part of the main area with nice cabinets and a kitchen island.
The outside of the building has aluminum siding and thus very little maintainance is needed. The house has a sprinkler system, has been certified by the fire department and the housing association has a contract with a fire inspection service for regular checkups.
Plenty of parking right outside the property
Please contact Hallgrímur Hólmsteinsson certified real estate agent tel 896-6020 or via email hallgrimur@trausti.is for further information
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.