Upplýsingar
Byggt 2014
321,2 m²
6 herb.
3 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Opið hús: 19. febrúar 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vandað og vel skipulagt raðhús á þremum hæðum á skjólsælum stað í Fossvogsdal. Innanhússhönnun var í höndum Rutar Káradóttur og er allar innréttingar, skápar og innihurðir sérsmíðaðar af Sérverk. Eignin er búin vönduðum tækjum og fallegum flísum í bland við gegnheilt eikarparket en gólfhiti er á miðhæð og í kjallara. Eignin er 321 fm skv. opinberri skráningu en því til viðbótar er óskráð rými undir bílskúr þar sem útbúin hefur verið frábær líkamsræktaraðstaða/tómstundarými. Heildarfermetrar eignar eru því um 363 fm. Húsið er vel skipulagt og hentar afar vel fyrir fjölskyldufólk.Bókið skoðun:
Kjartan s. 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
**Sækja söluyfirlit**
Eignin telur forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö sjónvarpshol, fjögur stór svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, líkamsræktaraðstöðu í óskráðu rými og bílskúr.
Nánari lýsing:
Miðhæð: Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi. Við forstofu er falleg gestasnyrting með upphengdu salerni og handlaug. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúr. Alrými hæðarinnar er opið og bjart með útgengi um rennihurð út í garð. Eldhúsið er veglegt með sérsmíðaðri, hvítri innrétting á móti dökkbæsaðri eik. Steinn er á borðum, undirlímdur vaskur og vönduð tæki. Stofan og borðstofan eru samliggjandi og rúmgóðar með stórum gluggum í suður út á verönd. Fallegar flísar eru á gólfum miðhæðar með gólfhita. Sólríkt útisvæðið er hið glæsilegasta með miklum harðviðarpöllum, skjólveggjum og heitum potti. Frá alrými er veglegur stálstigi milli hæða. Stigahol er mjög bjart með fallegum, hringlaga þakglugga.
Efri hæð: Komið er inn í rúmgott sjónvarpshol með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Á hæðinni eru þrjú mjög rúmgóð og björt svefnherbergi með góðu skápaplássi. Stórt baðherbergi er á hæðinni með sérsmíðaðri innréttingu,steinn á borðum, undirlímdur vaski og "walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum.
Neðsta hæð: Stór hjónasvíta er á neðstu hæð með útgegni út á verönd. Stórt fataherbergi og baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni og veglegri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Rúmgott sjónvarpshol er einnig á hæðinni. Stórt þvottahús með innréttingu með góðu geymsluplássi. Óskráð rými er undir bílskúr (rúmir 40 fm) þar sem útbúin hefur verið frábær líkamsræktaraðstaða og tómstundarými.
Bílskúr er skráður 41,5 fm. Innangengt er í bílskúr frá forstofu. Rafknúin bílskúrshurð auk inngönguhurðar að framan. Einnig er á bakhlið bílskúrs útgönguhurð og gluggar sem vísa út í bakgarðinn. Lóðin er fullfrágengin með snjóbræðslukerfi fyrir framan hús og veglegum pöllum og skjólveggjum á baklóð.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali s. 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook