Opið hús - Hafnarbraut 14B íb. 106
Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa: Stór með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt með góðum gluggum, parket á gólfi og útgengt á svalir.
Eldhús: Opið við stofu, falleg innrétting, gott skápapláss, innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Svefnherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi, geymsla innaf herbergi sem er í dag nýtt sem fataherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt og vel innréttað með stórri innréttingu, fallegri lýsingu og sturtuklefa með einhalla. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í skáp.
Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Eignin er í útleigu og er leigjandi tilbúinn að leigja áfram sé það í boði.
Þetta er nýleg, falleg og vel skipulögð íbúð - frábær fyrstu kaup.
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.