Lýsing
Alla frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is
Komið er inn á rúmgóða flísalagaða forstofu, fataskápur. Stórt opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús, harðparket er á gólfum. Úr stofunni er gengið út á lóðina sem er aflokuð og með stórum sólpalli í suður. Í eldhúsinu er falleg hvít innrétting, innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja með. Innaf eldhúsinu er rúmgott flísalagt þvottahús og geymsla (er búið að opna á milli), búið er að koma fyrir salerni í þvottahúsinu. Úr opna rýminu er teppalagður stigi upp á efri hæðina. Þar eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergið er með góðum fataskápum og er útgengt á svalir. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtu yfir, innrétting og gluggi.
Lóðin er afgirt og með stórum sólpalli. Á lóðinni er lítill geymsluskúr sem fylgir ásamt gróðurhúsi. Sameiginlegt leiksvæði er á lóðinni á milli húsanna.
Frábært fjölskylduhús á góðum stað í Árbænum.
Mögulegt er að taka uppí minn eign í hverfinu, 3ja til 4ra herbegja íbúð í fjölbýli. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.