Lýsing
Um er að ræða 407,9 fermetra einbýlishús á þessum vinsæla stað á Seltjarnarnesi. Húsið stendur á stórri lóð sem telur 1.416 fm með glæsilegu sjávarútsýni. Húsið býður upp á mikla möguleika, í dag er húsið nýtt undir þrjár leiguíbúðir en auðvelt að tengja íbúðirnar aftur saman.
Ormar Þ. Guðmundsson teiknaði húsið - Arkitektastofan OÖ (Ormar Þ. Guðmundsson og Örnólfur Hall arkitektar). Ormar starfaði hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur til 1967 en þá stofnaði hann Arkitektastofuna OÖ ásamt Örnólfi Hall. Arkitektastofan vann til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Árið 1988 hlaut Eiðistorg á Seltjarnarnesi sérstaka viðurkenningu í alþjóðlegri samkeppni IWCC. Svartsengi, orkuver Hitaveitu Suðurnesja, er þekktast verka Ormars á alþjóðavettvangi. Önnur verk eru til dæmis Verzlunarskóli Íslands, Flensborgarskóli, Fellaskóli, Grænaborg, íþróttamiðstöð í Stykkishólmi og Ytri-Njarðvíkurkirkja.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, fataskápar. Stórt og bjart flísalagt hol og þaðan er gengið á efri og neðri pall hússins. Rúmgóðar samliggjandi stofur með mikilli lofthæð og miklu óhindruðu útsýni til sjávar. Efri stofan er teppalögð með arinn og borðstofa flísalögð. Eldhúsið er rúmgott með viðarinnréttingum og góðum borðkrók, útgengt er úr eldhúsi í sólskála. Baðherbergi með glugga, flísalagt á gólfum og veggjum, viðarinnrétting. Rúmgott þvottahús. Á efri palli eru þrjú svefnherbegi en búið er að opna á milli tveggja herbergja og eru í dag nýtt sem tvö herbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi. Hjónasvíta samanstendur af hjónaherbergi, baðherbergi og fataherbergi. Rúmgott eldhús með viðarinnréttingum og góðum borðkrók. Útgengt er úr eldhúsi í sólskála. Bílskúrinn er 49,9 fm með gluggum, rafmagni, hita og rennandi vatni. Lóð hússins er með stórri hellulagðri innkeyrslu og framlóð er tyrfð. Innkeyrsla og stétt fyrir framan húsið er með hitalögnum í.
Mjög góð staðsetning þar sem útsýnið fær að njóta sýn, óhindrað útsýni yfir Faxaflóann frá Snæfellsnesi til Skálafells. Stutt er í útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir. Öll þjónusta til staðar t.a.m. leikskóli, skóli, sundlaug, bókasafn, heilsurækt, kaffihús, verslanir og golfvöllur o.fl.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat