Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Fífumói 13-15

800 Selfoss

57.500.000 kr.

606.540 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2269552

Fasteignamat

54.700.000 kr.

Brunabótamat

50.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
94,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega snyrtilega og bjarta þriggja (4) herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi, Fífumóa 13-15 á Selfossi. Íbúðin er 94,8 fm. Húsið er byggt 2005 úr forsteyptum einingum. Malbikað bílaplan. Frábær staðsetning innst í botnlanga.  Íbúðin er ný þrifin og tilbúin til afhendingar.

ÍBÚÐ: Komið inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Í opnu rými þar sem er eldhús, stofa og borðstofa er útgengi á fínar svalir með fallegu útsýni. Baðherbergi er flísalagt, sturtuklefi, upphengt wc og innrétting. Í sérherbergi er þvottahús með vinnuborði, efri hillum og skolvaski. Tvö góð svefnherbergi, eitt af þeim hjónaherbergi með stórum fataskáp og einnig er fataskápur í barnaherbergi.  Þriðja herbergið í íbúðinni er skráð geymsla en hæglega hægt að nota það sem t.d. skrifstofu eða auka herbergi.  Plastparket er á gólfum en flísar á votrýmum. Fallegar innréttingar, skápar og vönduð heimilistæki. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.

Björt og falleg íbúð! Virkilega gott innraskipulag þar sem hver fermetri er nýttur til fulls.  Bókið skoðun - sýni samdægurs!

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"    
   
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. nóv. 2019
30.300.000 kr.
32.500.000 kr.
94.8 m²
342.827 kr.
2. nóv. 2016
19.850.000 kr.
25.600.000 kr.
94.8 m²
270.042 kr.
9. maí. 2008
16.985.000 kr.
17.400.000 kr.
94.8 m²
183.544 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum