Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sævar Þór Jónsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
265,1 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vandað sjö herbergja 265,1 fm raðhús við Seljabraut 64 í Seljahverfi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, auka herbergi og sér stúdíó íbúð í kjallara. Stæði í bílastæðakjallara fylgir.
 
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með dökkum leirflísum. Gestasnyrting er inn af forstofu með eldri innréttingu.
Inn af forstofu tekur við parketlagt hol með panel á veggjum. Úr holinu er gengið í eldhús, stofu og stiga.
Eldhúsið er flísalagt með eldri, rúmgóðri, ljósri eldhúsinnréttingu og góðum borðkrók.
Stofan er rúmgóð og björt og nýtist einnig sem borðstofa. Arinn er í stofunni. Út af stofunni ganga stórar suðursvalir og er gengt af þeim niður í skjólgóðan og stóran bakgarð. Í garðinum er útigeymsla
Stigar upp á efri hæð og niður í kjallara eru með ljósu kókos teppi.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi. Baðherbergið er rúmgott með ljósum flísum og eldri innréttingum úr ljósum við. Í baðherbergi er bæði baðkar og stór innbyggð sturta.
Svefnherbergin á efri hæð eru öll rúmgóð með ljósu parketi á gólfum. Hjónaherbergið er með góðu fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig útgengt á stórar svalir á efri hæð.
Í kjallara er þvottahús og geymsla en einnig auka herbergi sem nýtt er sem vinnuaðstaða. Í kjallaranum hefur verið innréttuð stúdíó íbúð með eldhúskrók og sér baðherbergi, sem er í útleigu. Möguleiki er á áframhaldandi leigu.
 
Húsið er mikið til upprunalegt með eldri innréttingum og hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina en tími er komin á endurbætur. Skipt var um þak fyrir u.þ.b. 10 árum.
 
Þessi eign er á rólegum stað í rótgrónu hverfi. Stutt er í bæði leik- og grunnskóla sem og matvöruverslanir. Um fjölskylduvænt hverfi er að ræða og stutt t.d. í skíðabrekkuna í Breiðholti.

img
Sævar Þór Jónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Sævars Þórs
Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
img

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík