Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
hæð

Lautarvegur 16

108 Reykjavík

179.900.000 kr.

782.514 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2328044

Fasteignamat

159.250.000 kr.

Brunabótamat

132.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
229,9 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Domusnova hefur til sölu stórglæsilega 229,9 fm. sérhæð með bílskúr og aukaíbúð í fallega nýlegu þríbýli innst í botnlanga að Lautarvegi 16, 103 Reykjavík á eftirsóttum stað í Fossvoginum. 

Lautarvegur 16 er þriggja íbúða fjölbýlishús með tveimur sambyggðum bílskúrum. Eignin er í heild 229,9 fm. á tveimur hæðum að meðtöldum 30 fm. bílskúr. Í kjallara er 51,3 fm. aukaíbúð og 12,9 fm. sérgeymsla. Íbúðarrými á aðalhæð er 135,7 fm. sem skiptist í anddyri, alrými sem telur eldhús, borðstofu og stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eitt þeirra með fataherbergi og sér baðherbergi. Aðkoma einstaklega góð og hefur eignin þrjú bílastæði til afnota við húsið. Hæðin er einstaklega smekkleg þar sem vandað hefur verið til efnisvals og vinnu, m.a. sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás, kvartssteinn á borðplötum, innfelld sturta og blöndunartæki á baðherbergi. Íbúðin var nýlega máluð af málarameisturum. Húsið er hannað af Úti og Inni arkitektum.

Nánari lýsing:
Aðalhæð
Anddyri: Sérsmíðaður fataskápur frá Brúnas með speglaklæðningu. Flísar með marmaraáferð á gólfi.
Eldhús: Vönduð og smekkleg hvít innrétting frá Brúnás með innfelldri lýsingu og innbyggðum tækjum að hluta. Kvartsteinn á borðum, tvöfaldur ísskápur, spanhelluborð frá Miele, bakaraofn og uppþvottavél frá AEG. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa í opnu rými með borðstofu og eldhúsi. Frá stofu er úgengt á 35 fm hellulagða verönd sem nýtist einkar vel, svalalokun á 11,4 fm hluta verandar. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: hjónasvíta - hjónaherbergi með afmörkuðu fatarými og sér baðherbergi. Baðherbergi með fallegri innréttingu, tvöföldum speglaskáp, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni og glugga. Útgengi á hellulagða verönd með háum timburskjólvegg.
Svefnherbergi II með skápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting frá Brúnás með innfelldum blöndunartækjum. Spegill yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, Innfelld WALK IN sturta með innfelldum blöndunartækjum. Hvítar veggflísar utan vegg við sturtu þar sem eru flísar með viðaráferð sem einnig eru á gólfi. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara.

Aukaíbúð/kjallari: 
Hæðinni fylgir 51,3 fm. aukaíbúð í kjallara sem upphaflega var ætlað sem tómstundarými, möguleiki er að stækka íbúðina um 12,9 fm. sem er samliggjandi geymsla sem tilheyrir hæðinni. Nýtt parket er á íbúðinni. 
Eldhús: Innrétting með bakaraofni og helluborð. Parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskápur. Parket á gólfi
Baðherbergi: Innrétting með handlaug. Upphengt salerni. Sturta. Handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Íbúðin er í útleigu.
Geymsla: 12,9 fm. sérgeymsla í kjallara.

Bílskúr: Rafmagn, heitt og kalt vatn. Rafdrifin bílskúrshurð (nýsprautuð). Hleðslustöð. Málað gólf. Hægt er að leggja tveimur bílum framan við bílskúr þar sem planið hefur verið stækkað.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Þrjú bílastæði eru í sameign og er samkomulag um að hver eign hafi eitt bílastæði til afnota. 
Lóð: Garður er í sameign en eignin hefur stóran (46,4 fm.) afmarkaðan sérafnotaflöt framan við stofu í suður og annan minni (10,6 fm) í vestur út frá hjónaherbergi.


Seljandi skoðar að taka minni eign upp í


Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s. 691 4591 / sjofn@domusnova.is
Heimir Bergmann, löggiltur fasteignasali / s. 630-9000 / 
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
 

img
Sjöfn Hilmarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domusnova fasteignasala
Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
img

Sjöfn Hilmarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. feb. 2021
95.950.000 kr.
118.000.000 kr.
229.9 m²
513.267 kr.
8. apr. 2019
95.300.000 kr.
98.000.000 kr.
229.9 m²
426.272 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone

Sjöfn Hilmarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur