Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1963
166,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð samtals 166,2m² sérhæð með tvennum svölum og bílskúr í þríbýli á þessum vinsæla stað í Háaleitinu. Möguleiki er á allt að fjórum svefnherbergjum. Stutt er í alla þjónustu, leikskólinn Álftaborg og Álftamýraskóli eru steinsnar frá sem og íþróttasvæði Víkings í Safamýri.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 166,2m², stærð íbúðarrýmis er 136,7m², bílskúrs er 24,5m² og geymsla í kjallara er skráð 5m².
Nánarí lýsing.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang og inn í flísalagða forstofuna.
Herbergi: Við enda forstofu til hægri er rúmgott herbergi með fataskáp og parket á gólfi. Utgengt út á svalir sem snúa inn í garð.
Stofur: Stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og fallegu rými, nýlegt parket á gólfi. Frá borðstofu er gengið út á rúmgóðar flísalagðar svalir sem eru á suðvestur horni hússins.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðri innréttingu og borðkrók við glugga, tengi fyrir uppþvottavél, nýlegt span helluborð. Nýlegur steinn er á borði innréttingar.
Svefnherbergi: Á herbergjagangi eru á teikningu þrjú herbergi en í dag er búið að sameina tvö herbergi í eitt þannig að í dag eru þar tvö rúmgóð herbergi. Lítið mál er að breyta þessu aftur til baka. Parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á veggi. Baðkar og sturtuklefi, innrétting um handlaug og opnanlegur gluggi.
Gestasnyrting: Innaf forstofu er flísalögð gestasnyrting með glugga.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar, skolvaskur og opnanlegur gluggi.
Bílskúr: í bílskúr er bæði heitt og kalt vatn, 3ja fasa rafmagn og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Sameign: Sér geymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Gott viðhald hefur verið á húsinu. Að sögn eiganda hefur eftirfarandi verið gert s.l 20 ár
2006 Skipt um þakjárn og pappa. 2008 Skipt um salerni og hluta innréttingar á baði. 2009 Þak málað. 2017 Nýr bakstursrofn. 2018 Frárennsli fóðrað. 2018-2020 Raflögn í bílskúr betrumbætt til bílhleðslu, bæði sterkur tengill og hleðslustöð. 2019-2020 hús múrviðgert. 2021 Hús málað utan og útidyratröppur lagfærðar. Dúkklæðning á bílskúrsþaki og útidyraskyggni. Nýtt gólfefni á meiri hluta íbúðar [ Berg Eiche Natur Mammut 12mm frá Birgisson]. Nýtt helluborð , span [Bosch]. 2024 Ný borðplata í eldhúsi [Steinprýði] ásamt vaski [Tengi] og krana [HansGrohe]. 2025 Skipt um og betrumbættir stærstu og helstu gluggar áveðurs og endurnýjun ofnalagna og ofnakrana.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. mar. 2007
27.640.000 kr.
39.400.000 kr.
166.2 m²
237.064 kr.
30. maí. 2006
25.190.000 kr.
37.400.000 kr.
166.2 m²
225.030 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026