Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
raðhús

Stóriteigur 20

270 Mosfellsbær

135.000.000 kr.

514.678 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2084380

Fasteignamat

122.750.000 kr.

Brunabótamat

124.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
262,3 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Stóriteigur 20, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. febrúar 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00. Eiríkur Svanur Sigfússon lgf. verður á staðnum.

Lýsing

Til sölu einstaklega vel staðsett endaraðhús við Stóriteig 20 í Mosfellsbæ. Um er að ræða rúmgóða eign með aukaíbúð í kjallara, stórum upphituðum bílaplani og bílskúr – fullkomið heimili fyrir fjölskyldu sem vill rými, þægindi og möguleika á útleigutekjum.  Eignin er alls 262,3 fm að stærð sem skiptist þannig að fyrsta hæðin er 73,5 fm, efsta hæðin 73,5 fm, kjallari 94,4 fm og bílskúrinn 20,9 fm.  Almennt er húsið í góðu ástandi og hefur verið töluvert endurnýjað undanfarin ár. 
Helstu kostir
Endaraðhús með sérstöðu og auknu næði
Aukaíbúð í kjallara (í útleigu í dag)
Stórt, hellulagt og upphitað bílaplan
Bílskúr með hita, heitu og köldu vatni og tengingu fyrir hleðslustöð
Þak og þakkantur endurnýjað um 2018
Nýir gluggar og K-gler garðmegin
Nýtt frárennsli, dren, brunnar og 3ja hólfa sorpgeymsla
Aðalíbúð (1. og 2. hæð) mikið endurnýjuð
Unnið er að endurnýjun svalanna og á útvegg í bakgarð. 

1. hæð:  Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi. Gestasalerni með upphengdu salerni og snyrtilegri innréttingu, blöndunartæki frá Ísleifur Jónsson.  Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi og útgengi í suðurgarð.
Eldhús með nýrri innréttingu og afar góðu skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur og þvottavél fylgja. Tvö aðskilin rafmagns-loftræstikerfi – eitt fyrir eldamennsku og annað fyrir almenna loftun.

2. hæð:  Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og útgengi á svalir sem snúa í garð.  Þrjú önnur svefnherbergi, öll með parketi og fataskápum.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, baðkari og glugga með fallegu útsýni að Esjunni. Gólfhiti er á baðherberginu og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara.

Kjallari – aukaíbúð:  Lokað hefur verið á milli hæða en auðvelt að opna aftur. Í dag er þar um 80 fm íbúð með rúmgóðu eldhúsi og stóru opnu rými sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Kjallarinn er í útleigu og skapar tekjumöguleika.
Bílskúrinn: er upphitaður, með rafmagni, heitu og köldu vatni og tengimöguleika fyrir hleðslustöð.

Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir, heilsugæslu og aðra helstu þjónustu. Þá eru vinsælar göngu- og útivistarleiðir í næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

img
Eiríkur Svanur Sigfússon
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði