Opið hús: Langahlíð 15, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 201-3389, nánar tiltekið eign merkt 03-01, birt heildarstærð 106.3 fm (Gólfflötur íbúðarinnar er töluvert stærri þar sem hluti eignarinnar er undir súð). Þar af er íbúðin skráð 89,8 fm og geymslur í risi 16,5 fm (geymslur 0401, 0402, 0403 og 0404), Opnað hefur verið milli geymslna og innréttuð falleg stúdíó íbúð.
Eignin skiptist í: Hol, 3 svefnherbergi, stofur, eldhús, baðherbergi ásamt rýmis í risi. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og lítil geymsla á stigagangi.
Nánari lýsing eignarinnar:
Hol: Parketlagt, innbyggður fataskápur, tenging við öll herbergi, stofur, eldhús og bað.
Stofur: Tvær samliggjandi stofur með fallegum kvistum og fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Eldhús: Búið er að færa eldhúsið í aðra stofuna. Snyrtileg hvít innrétting og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, fallegur kvistur, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott, fallegur kvistur, innbyggður fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott með parketi á gólfi, hvítur fataskápur (var áður eldhús).
Bað: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, ljós innrétting.
Ris: Í risi er snytileg parketlögð stúdíó-íbúð, baðherbergi með sturtu og eldhúskrókur.
Um er að ræða falleg og skemmtileg eign sem jafnframt býður nýjum eigendum upp á mikla möguleika til breytinga.
Einstaklega góð staðsetning í grónu hverfi við Klambratún og steinsnar frá miðbæ RVK.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.