Opið hús: Hverfisgata 44, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Samkvæmt HMS er íbúðin 67,5 fm. Eigninni tilheyrir sérgeymsla, birt stærð 5,6 fm. Staðsetningin er frábær í hjarta miðborgarinnar í nýju glæsilegu húsi. Sameiginlegar þaksvalir á efstu hæð hússins eru beggja vegna hússins, í suður og norður.
Nánari lýsing.
Eldhús með fallegri hvítri og grárri innréttingu og blöndunartæki frá Grohe. Mjög gott skápa og borðpláss. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja því með.
Stofa er í alrými með eldhúsi og útgengt á svalir með viðarflísum.
Baðherbergið er með góðri hvítri innréttingu ásamt stórum spegli með ledlýsingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og þvottaaðstöðu. Flísar á gólfi og sturtuvegg.
Herbergið er stórt með góðum fataskápum og fallegu útsýni.
Fallegt harðparket er á íbúðinni.
Geymsla í kjallara 5,6 m2 ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Sameign er snyrtileg og er lyfta í húsinu.
Gólfhiti er í íbúðinni.
Mynddyrasími.
Staðsetningin er frábær á svokölluðum Brynjureit og miðpunktur verslunar, afþreyingar og þjónustu í hinu litríka miðborgarlífi.
Brynjureitur afmarkast af Laugavegi 27 a og b og Hverfisgötu 40-44 og á milli þeirra liggur ný og skemmtileg göngugata sem getur skapað sér sérstöðu í hringiðu miðbæjarins og hefur fengið nafnið Kasthúsastígur.
Byggingin er blönduð byggð íbúða-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis.
Þessi eign hentar afar vel fyrir fyrstu kaupendur. Frábær staðsetning í nýju húsi í göngufæri frá menningu miðborgarinnar, verslunum og veitingastöðum. Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 8966020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.