Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
atvinnuhúsnæði

Smiðjuvegur 10

200 Kópavogur

349.500.000 kr.

430.472 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2065285

Fasteignamat

226.200.000 kr.

Brunabótamat

254.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
811,9 m²
svg
3 herb.
svg
5 baðherb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

TIL  SÖLU  EÐA  LEIGU -  SMIÐJUVEGUR 10 - KÓPAVOGI.   

MJÖG GOTT  812 FM  VERSLUNAR, IÐNAÐAR, SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á ALLRA BESTA STAÐ MIÐSVÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.  FRÁBÆRT HÚSNÆÐI FYRIR HVERSKONAR REKSTUR S.S. VERSLUN, HEILDSÖLU, VERKSTÆÐI, MARKSKONAR ÞJÓNUSTU OG FL
.

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna:  Einstaklega gott og velviðhaldið alls  811.9 fm  Iðnaðar, verslunar og að hluta skrifstofu húsnæði á eftirsóttum stað við Smiðjuveg 10 í Kópavogi. Gluggar á 4 vegu. Jarðhæðin er 563,3 fm og efri hæðin 248,6 fm.  Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, góð aðkoma, góðir gólfsíðir verslunargluggar og góð bílastæði.  Skiptist í verslunar-móttöku sal, góðan lager bakatil, verkstæði, kaffistofu, snyrtingar, fundarherbergi. 2.hæðin er svo 2 skrifstofur, stórt athafnarými og svo stór ca 60 fm studio íbúð. Efri hæðin getur haft sérinngang í horni suðurhliðar hússins (anddyri og stigi þar upp).  Sér fyrirtæki (ehf) er um þessa eign og er möguleiki að kaupa eignina með kaupum á því fyrirtæki. 

NÁNARA SKIPULAG: 
Aðkoma að sunnanverðu með góðum sér bílastæðum. Móttaka, viðskipta/verslunarsalur með gólfsíðum gluggum (úr massivri eik), 3 afstúkaðar skrifstofur með glerveggjum og bakatil eru nokkur skrifstofupláss óstúkuð (vínilparket á framsal).  Bakatil sem er með frábæra útsýnisglugga til norðurs (Esjan, Akrafjall) er stór lager/vinnu salur (epoxy á gólfi) með hátt í 5 mtr, lofthæð mest. Fundarherbergi (vínilparket) og snyrting við hliðina. Baksalurinn hefur innkeyrsluhurð að sunnanverðu. Þar við hliðina er verkstæðissalur lítill, síðan tvær snyrtingar, önnur með sturtuklefa. Síðan rúmgóð kaffistofa með innréttingum með m.a. uppþvottavél (vínilparket). Inngönguhurð í horni á suðurhliðinni, anddyri og stigi þar uppá 2.hæð.  Þar er stór salur dúklagður, 2 skrifstofur að austanverðu. Op er af hæðinni niður í salin við innkeyrsluhurðina svo hægt sé að lyfta upp og setja uppá 2.hæð pallettur og vörur. Að vestanverðu á 2.hæðinni er síðan studio íbúð ca 60 fm með stóru alrými sem hefur eldhúskrók og svo baðherbergi flísalagt með sturtu. þar við hliðina er stór súðargeymsla. Síðan er við hlið íbúðarinnar, snyrting og aðkoma á geymslupall.  

Eftirfarandi atriði eru frá seljanda um það sem hefur verið unnið við viðhald og endurbætur s.l. 5 ár. =
Skipt um allt bárujárn+pappa á þaki, settir útloftunarstampar.  Nýr þakkantur (eftir norðanmegin).  Nýjir gluggar og gler 3 stk. af 4 (1 stk. sem búið var að endurnýja) þetta eru stóru gluggarnir norðan megin.  Jarðhæð máluð.  Gólf í framsal á jarðhæð, skrifstofur ofl. flotað og sett á nýtt vínilparket. Önnur gólf máluð með epoxi (jarðhæð).  Öll ljós á jarðhæð LED.  Sett upp loftræsikerfi (varmaskiftakerfi) fyrir skrifstofur og fundaherbergi.  Sett upp fundaherbergi og kaffistofa ásamt  innréttingum og sturtuklefi í snyrtingu.  Gler skilrúm á skrifstofur.  Snjóbræðsla við innkeyrslu og gangstétt við glugga. Nýleg rafmagnstafla í lagerrými. 
                                      
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S:896-5222   ingolfur@valholl.is    
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 36 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222. 
 
VALHÖLL FASTEIGNASALA  SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM  OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR. 

img
Ingólfur Geir Gissurarson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Ingólfur Geir Gissurarson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. okt. 2013
24.110.000 kr.
65.000.000 kr.
786.2 m²
82.676 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Ingólfur Geir Gissurarson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík