Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
269,6 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. febrúar 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Eyktarás 15, 110 Reykjavík. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. febrúar 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30. Eignin er einnig sýnd í einkaskoðunum eftir samkomulagi.

Lýsing

*SÝND Í EINKASKOÐUNUM SAMKVÆMT SAMKOMULAGI * Rúmgott vandað einbýli sem fengið hefur gott viðhald. Eignin er með glæsilegu alrými eldhúss, borðstofu og stofu með útgangi út á svalir, vönduðum sérsmíðuðum innréttingum í eldhúsi og gólfefnum úr ekta við, náttúruflísar á eldhúsi og borðstofu og franskar svalir ásamt góðum svölum sem gengið er út á úr borðstofu. Hátt til lofts, innfelld lýsing og glæsilegur vandaður arinn í stofu. Alrýmið var endurgert og hannað af Studio Granda. Sex svefnherbergi eru í húsinu, þar af eru þrjú á efri hæð og þrjú á neðri hæð. Eitt herbergja á efri hæð er nú nýtt sem skrifstofa, og á neðri hæð eru herbergin rúmgóð og þar af eitt herbergja mjög rúmgott og notað sem sjónvarpsherbergi. Baðherbergi er á efri hæð en gestasnyrting á neðri hæð. Þvottahús þar sem búið er að koma fyrir sturtu er einnig á neðri hæð.  Fallegur gróinn garður og frábær staðsetning.  BÓKIÐ SKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir lgf í síma 8993090 eða elina@valholl.is
Húsið er á tveimur hæðum með glæsilegu útsýni á einstökum friðsælum stað við Eyktarás 15 í Selásnum, örstutt er í sundlaug og íþróttaaðstöðu sem og fallegar gönguleiðir um Elliðaárdalinn, skóla og aðra þjónustu. Eignin er skráð 269,6 m2 í fasteignaskrá, þar af er bílskúr 37,2 m2.  Gott hús fyrir stórfjölskyldur með sex svefnherbergjum og baðherbergi ásamt gestasnyrtingu í rólegu barnvænu hverfi. 
Neðri hæð. 
Forstofa er með vönduðum náttúruflísum á gólfi sem flæða fram í hol neðri hæðar.  
Gestasnyrting með glugga er á vinstri hönd, flísalagt gólf og að hluta til veggir, upphengt salerni,
Stórt herbergi er einnig á vinstri hönd með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp - gluggar á tvo vegu.
Bílskúr er skráður 37,2 m2 að stærð með máluðu gólfi. Hitagrind hússins er í bílskúr og þar má komast í heitt og kalt vatn. Bílskúrshurð er með gönguhurð. Gluggi á bílskúr. Rafhleðslustöð.
Svefnherbergi á hægri hönd er rúmgott með parketi á gólfi.
Annað mjög rúmgott herbergi  með parketi á gólfi er nú sjónvarps- og leikherbergi.
Þvottahús með hvítri innréttingu með skolvaski, tengi fyrir þvottavél. Flísalagt gólf og lokaður sturtuklefi. 
Efri hæð.
Steyptur stigi með fallegu sérsmíðuðu stálhandriði og sérlega vönduðu viðarparketi er frá holi neðri hæðar. 
Eldhús/borðstofa er mjög rúmgott rými með náttúruflísum á  gólfi með gólfhita og veglegri sérsmíðaðri innréttingu með góðu skápaplássi, innbyggður ísskápur, eyja með stáli og að hluta til  opinn pottaskápur, fimm hellu rafmagnshelluborð með viftuháf yfir. Útgengi úr borðstofu út á skjólgóðar svalir til vesturs með glæsilegu útsýni. Tæki í eldhúsi eru frá Miele, innbyggð uppþvottavél, háfur sem er með loftun út í gegnum þakið, helluborð og tveir ofnar í vinnuhæð. Innbyggður kæliskápur er frá AEG. Sérsmíðuð stálboð og vaskur í eldhúsi.  
Stofa með sérlega vönduðu viðarparketi á gólfi og fallegum sérsmíðuðum arni. Steinplata úr fallegum náttúrustein við arinn. Glæsilegt útsýni til vesturs. Útgengi er á svalir frá stofu.
Baðherbergi er upprunalegt en vel um gengið og snyrtilegt. Það er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar á baði.
Herbergjagangur er við hlið baðherbergis en þar eru 2 góð svefnherbergi auk herbergis sem nú er nýtt sem skrifstofa.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og innfelldum fataskápum frá Axis.
Svefnherbergið með parketi á gólfi og innfelldum fataskáp frá Axis.
Lóð er fallega gróin og snyrtileg, timburverönd með skjólveggjum og þar sem ríkir mikil veðursæld og matjurtakassar eru á lóð ásamt fallegum plöntum.
Aðkoma hússins að framan er snyrtileg með hellulögðu bílaplani, fallegu gróðurbeði með gosbrunni við gönguleið að inngangi. Húsið stendur á eignarlóð.
Þakplötur pappi og hluti af timburverki var endurnýjað fyrir nokkrum árum en þak hefur ekki verið málað. Nánast allt gler hefur verið endurnýjað eftir þörfum og gluggapóstar fengið viðhald. 
Þess má geta að rennihurðar í eldhúsi og borðstofu eru af sérlega vandaðri gerð þar sem skrúfur og tappar eru ekki sýnilegir. Þessar hurðar voru settar í samhliða breytingum og endurnýjun á alrými efri hæðar. Skipulag er ekki í samræmi við samþykktar teikningar.
Virkilega falleg eign sem er þess virði að skoða.
Allar upplýsingar um eignina veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is
 

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík