< Til baka

9 ATRIÐI ER VARÐA ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI – UPPLÝSTIR KAUPENDUR LENDA Í MINNSTUM VANDA

Almennt eru stærstu fjárhagslegu gerningar fólks þegar það kaupir eða selur fasteign. Það er því mikilvægt að bæði kaupendur og seljendur séu vel undirbúnir.

Reynslan sýnir glöggt að flest þeirra vandamála sem upp koma í gegnum viðskiptin eru milli kaupenda og seljenda. Hjá mörgu hefði mátt komast ef kaupendur hefðu skoðað eignina betur og eftir atvikum leitað frekari skýringa. Kaupandi sem kynnir sér málin vel getur komið fram með réttar spurningarnar og veitt því athygli er skiptir máli:

Félag fasteignasala hefur sett upp 9 góð ráð.

1. Hugaðu vel að því í upphafi á hvaða verðbili eignin eigi að vera og hvaða lánakjör bjóðist. Skoðaðu vel hvernig þú ætlar að standa að fjármögnunni, þar er að mörgu að hyggja. Félagsmenn FF geta leiðbeint þér um leiðir eða hvað er heppilegast.

2. Hvers konar eign: 

a. er ég að leita að innan verðbilsins sem ég hef sett mér.

b. hef ég þörf á innan verðbilsins sem ég hef sett mér.

3. Hvar vil ég/við búa. Vertu “opinn” hér. Þú getur verið ánægð/ur á öðrum stöðum en þú hugsar um. Ef þú ert með “þröngt” verðbil getur þú fengið meira fyrir peningana í hverfum sem minni eftirspurn er. Hvaða ferðatíma ert þú og fjölskyldan til í að hafa til og frá vinnu eða í tómstundir. Hvernig eru samgöngur.

4. Byrjaðu að skoða vel á netinu en inni fasteignir.is (inni á vísir.is) eru allar fasteignir sem eru til sölumeðferðar. Þar má sjá helstu upplýsingar um eignina er veita almenna yfirsýn. Sjáir þú áhugaverða eign skaltu hafa samband við fasteignasalann og fá allar nánari upplýsingar. Fasteignasalinn er ávallt búinn að skoða eignina vel og vinna ítarlegt söluyfirlit um hana sem hann getur sent þér. Ef eitthvað er en óljóst áður en þú ferð að skoða eignina þá er um að gera að spyrja fasteignasalann.

5. Vertu vel vakandi fyrir því að verið sé að selja eignina fyrir milligöngu fasteignasala. Listi yfir félagsmenn FF er inni á fasteignir.is og á heimasíðu FF. Þeir aðilar sem þar eru eru bundnir af margháttuðum skyldum, m.a. ströngum siðareglum auk margs annars er tryggja á neytendur sérstaklega í viðskiptunum.

6. Farðu alltaf á fyrstu sölusýningu eignarinnar og skoðaðu eignina mjög vel.  Sé áhugi til staðar fáðu þá kunnáttuaðila að skoða eignina. Spurðu fasteignasalann um allt það sem að þú ert ekki viss um en á fasteignasalanum hvílir rík ráðgjafaskylda gagnvart þér. Ef þú hefur gleymt einhverju vertu ófeimin/nn að biðja um að fá að skoða aftur. Opin hús eru auglýst sérstaklega í dagatali inni á fasteignir.is (visir.is), vertu vel vakandi fyrir hvenær opin hús eru haldin.

7. Að vera ánægður með eignina skiptir vitaskuld miklu en gættu að því að verða ekki svo háð/ur staðsetningu eignarinnar eða öðru að það valdi því að þú reisir þér hurðarás um öxl fjárhagslega eða eignin mæti ekki þeim þörfum sem þú hefur.

8. Núna getur þú lagt inn tilboð hafir þú fundið réttu eignina. Oft er sú staða uppi að fleiri hafa jafnframt áhuga á sömu eigninni. Vertu viðbúin/nn að aðrir kunna að hafa meiri greiðslugetu en þú. Það er fullkomlega eðlilegt að verða vonsvikin/nn að fá ekki eign sem maður býður í, en mundu það eru fáar “alveg einstakar” eignir sem um ræðir. Gættu þín að fara ekki út fyrir þann verðramma sem að þú hefur sett þér. Gerðu aldrei tilboð nema hafa vissu fyrir því að geta staðið við boðið.  Mundu að boð þitt í eignina er alltaf skriflegt og er bindandi, fasteignasalinn setur sé þess þörf fyrirvara sem þú hugsanlega þarft inn í kauptilboðið. Um slíkt leiðbeinir fasteignasalinn þér. Spurðu félagsmann FF um allt sem þú vilt vita við skjalagerðina en honum ber ávallt skylda að vera viðstaddur þegar þú skrifar undir skjöl og skýra út um hvaðeina sem er óljóst eða ef þú vilt fá nánari upplýsingar.

9. Eignin er þín! Þegar komið er samþykki seljanda við boði þínu eru kaupin gerð. Til hamingju! Hafir þú fylgt þeim 8 atriðum sem að nefnd voru hér að framan mun þér vonandi líða vel í nýju íbúðinni og komist hjá vandamálum sem stundum koma upp.

< Til baka