Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Vilborg G. Hansen
Vista
einbýlishús

Blikastígur 16A

225 Garðabær

168.500.000 kr.

774.357 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2315432

Fasteignamat

149.600.000 kr.

Brunabótamat

108.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2008
svg
217,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Blikastígur 16A, 225 Garðabær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson kynna: Fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð við Blikastíg, 225 Garðabæ. Húsið er staðsett í jaðri byggðar norðanlega á Álftanesi í litlum vinalegum og rólegum íbúðakjarna. Húsið er allt klætt með viðhaldslítilli litaðri álklæðningu. Fallegur og gróinn garður með timburverönd og heitum potti, stórt hellulagt bílaplan og geymslugarðskúr. Húsið er vandað timburhús frá SG hús og var reist 2008.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum skáp. Inn af forstofu er gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með gluggum á þrjá vegu, útgengi út á suður verönd. Eldhús er opið inn í stofu, stór hvít innrétting og eyja.  Sjónvarpskrókur er við hlið eldhúss. Á svefnherbergisgangi er stórt hjónaherbergi með góðum fataskáp, útgengi út á suðurverönd. Þrjú rúmgóð barnaherbergi með góðum skápum, baðherbergi með ljósri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturtuklefi. Þvottahús með hvítri innréttinu með miklu skápaplássi. Útgengi er úr þvottahúsi út í garð. Innangegnt er úr þvottahúsi inn í 42,4 fm. bílskúr. Bílskúrinn er innréttaður sem góð studioíbúð með eldhúsinnréttingu, svefnkrók, stofu, baðherbergi með sturtu ásamt rúmgóðri geymslu. Á gólfum eignar er harðparket á forstofu, eldhúsi, stofu og herbergjum, en á baðherbergi og þvottahúsi eru flísar. Um er að ræða fallega og vel skipulagða eign á vinalegum stað í jaðri Álftaness þar sem ósnortin náttúran er allt um kring. Leik- og grunnskóli ásamt íþróttamiðstöðinni við Breiðumýri (sundlaug og fjölnota íþróttasalur), fótboltavöllur utanhúss, 9 holu golfvöllur í næsta nágrenni ásamt frábærum göngu- og skokkleiðum.

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.


 

img
Páll Guðjónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Bær
Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
img

Páll Guðjónsson

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík

Páll Guðjónsson

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík