Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
svg

251

svg

173  Skoðendur

svg

Skráð  16. mar. 2026

einbýlishús

Birkihlíð 4

550 Sauðárkrókur

97.700.000 kr.

390.800 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2131243

Fasteignamat

76.650.000 kr.

Brunabótamat

107.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1972
svg
250 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Háborg fasteignasala kynnir Birkihlíð 4.

Glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr og grónum garði. Frábært útsýni.


Húsið 197,7 fm og bílskúr er 52,3 fm. Fjögur svefnherbergi eru í eigninni í dag og tvö baðherbergi.

Nánari lýsing

Efri hæð

Forstofa er með flísum á gólfi.
Herbergi 1 er inn af forstofu. Viðarparket á gólfi.
Eldhús er sérstaklega rúmgott, með miklu skápaplássi og borðkróki. Viðarparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými. Fallegt útsýni. Möguleiki að búa til annað svefnherbergi með því að stúka af borðstofu.
Herbergi 2 er á svefnherbergisgangi. Viðarparket á gólfi.
Herbergi 3 - Hjónaherbergi er á svefnherbergisgangi. Rúmgott með stórum fataskápum. Viðarparket á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, góðri innréttingu og stórum bað-/sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er rúmgott með plássi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.

Neðri hæð
Forstofa
með flísum á gólfi. 
Stofa er rúmgóð. Nýtt sem svefnherbergi í dag. Harðparket á gólfi
Stofa 2/sjónvarpshol er rúmgott. Stigi milli hæða og innangengt í bílskúr. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu. Flísar á gólfi.

Bílskúr er stór og rúmgóður. Heitt og kalt vatn, skolvaskur. Nýleg bílskúrshurð.

Lóðin er 800 fm. Stór og gróinn garður. Stórt hellulagt bílaplan er fyrir utan húsið með snjóbræðslu. Rúmgóður sólpallur með heitum potti. Fallegar steinhleðslur og mikill trjágróður sem nostrað hefur verið við.

Samkvæmt seljanda var skipt um þakjárn og þakpappa árið 2021 og gluggar yfirfarnir og endurnýjað gler og gluggalistar á árunum 2022-2024. Bílskúrshurð var endurnýjuð 2019. Neðri hæðin var standsett að miklu leyti um 2020, þ.á.m. skipt um innihurðar og gólfefni, þ.m.t. flísar á baði og í forstofu.

Eignin getur verið til afhendingar fljótt. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður og lögg. fasteignasali í s. 823-7170 og thorir@haborg.is.
 

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone