Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1965
177,1 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Opið hús: 19. mars 2026
kl. 16:15
til 17:00
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Þórunnarstræti 125 - 101
Um er að ræða rúmgóða og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr innangengum úr sameignarrými, sér inngangur er í íbúðina. Eignin er samtals 177,1 fm að stærð þar af er bílskúr 29,5 fm.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð ásamt því að ný eignaskiptayfirlýsing var gerð. Nánar um endurbætur hér neðar í lýsingu.
Vel staðsett eign miðsvæðis á Akureyri, í nálægð við leik- og grunnskóla, verslanir og ýmsa þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi. Bílskúr og þrjár sér geymslur.
Forstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, falleg innrétting með mjög góðu bekkjarplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, span helluborð með háf yfir, bakaraofn í vinnuhæð ásamt combiofni. Tæki og innréttingar frá IKEA.
Stofa og borðstofa björt með parketi á gólfi. Stórir gluggar til tveggja átta.
Baðherbergi með flísum á gólfi og við sturtu. Góð innrétting við vask með skúffum ásamt efriskáp. Wc upphengt og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Útgengi úr baðherberginu út á lóð og litla verönd til vesturs. Þar væri möguleiki á að setja heitan pott en aðgengi að lögnum fyrir þeim er nokkuð þægilegt.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parketi á gólfi og er fataskápur í einu þeirra.
Gangur framan við svefnherbergin með parketi á gólfi, á gangi er góð hirsla með skúffueiningum sem gæti til dæmis komið í stað skápa í herbergjum.
Farið er niður í sameignar kjallara úr forstofu, búið er að skipta kjallaranum þannig að í séreign eru:
Tvær litlar geymslur með hillum.
Stór geymsla með glugga
Bílskúr með nýrri rafdrifinni bílskúrshurð.
Í kjallara er einnig sameigninlegur inngangur.
Árið 2022 til 2023 var eignin algjörlega tekin í gegn að innan ásamt því að ný eignaskiptayfirlýsing var gerð þar sem rými í kjallara voru skilgreind.
- Allar innréttingar eru nýjar.
- Allar innihurðar eru nýjar.
- Eldhús, eldhústæki eru ný.
- Baðherbergi ásamt tækum er nýtt.
- Rafmagn er nýtt, bæði innan íbúðar og í kjallara rýmum.- Nýjar rafmagnstöflur - Sér mælir fyrir hvora eign í húsinu.
- Rafmagnstenglar í herbergjum eru með USB / USB-C tengjum
- Unifi netdiskar uppsettir í bílskúr og á hæð.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Gólfhiti fræstur í öll gólf innan íbúðar.
- Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar innan íbúðar.
- Varmaskiptir á vatni.
A.t.h fasteignasali hefur gert breytingar á grunnmynd íbúðar til að sýna núverandi skipulag og einnig má sjá séreignarými á annarri teikningu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. maí. 2022
38.750.000 kr.
55.000.000 kr.
128.7 m²
427.350 kr.
19. jún. 2017
25.350.000 kr.
31.000.000 kr.
128.7 m²
240.870 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026