Lýsing
Um er að ræða fallega, bjarta og töluvert mikið endurnýjaða 3ja herbergja 82.7 fm íbúð með sérinngangi í kjallara (lítið niðurgrafin) í reisulegu húsi við Ásvallagötu 10.A í Reykjavík.
Íbúð er vel skipulögð og með rúmgóðum rýmum. Baðherbergi, eldhús, gólfefni hefur allt verið endurnýjað á s.l.árum.
Húseign lítur mjög vel út að utan og er nýlega búið að endurnýja glugga og gler í húsi og sprunguviðgera hús að utan og mál.
Stutt er í skóla, leikskóla, miðbæ Reykjavíkur, Grandann og víðar.
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 82.7 fm merkt 00- 00-01 og samkvæmt teikningu er geymsla eignar innan íbúðar.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Sérinngang, forstofu/hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og geymslu/þvottahús innan íbúðar.
Nánari lýsing á eign:
Sérinngangur er í íbúð og er komið inní forstofu/hol og þar innaf er geymsla/þvottahús íbúðar.
Gangur er eftir endilangri íbúð og af honum er gengið í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með síðum gluggum.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart. Rúmgott barnaherbergi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum, WALK-IN sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, snyrtileg innrétting undir vask, handklæðaofn.
Eldhús er rúmgott í miðri íbúð með nýlegri eldhúsinnréttingu, mjög gott skápapláss í innréttingunni, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Geymsla/þvottaherbergi er innaf forstofunni.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.
Íbúðin er björt og rúmgóð og stendur á mjög góðum og rólegum stað.
Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem matvöruverslanir, heilsugæslu ásamt leik- og grunnskóla.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat