Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1945
76,7 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 23. mars 2026
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Stórholt 31, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 76,7 fm 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu fjölbýli við Stórholt 31. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, eldhús/borðstofu, herbergi, baðherbergi, lítið herbergi (geymsla samkvæmt teikningu) og hol. Geymsla undir útitröppum tilheyrir. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Sameiginlegur garður með skjólvegg er fyrir framan húsið (til suðvesturs). Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson og Gísla Halldórssyni.Nánari upplýsingar veita: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.
Nánari lýsing:
Hol: Komið er inn í rúmgott hol. Gólf er flotað. Fallegur bogadreginn spegill og innbyggð hilla undir honum fylgja með íbúðinni.
Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa.
Eldhús/borðstofa: Rúmgott eldhús sem nýtist sem eldhús og borðstofa. Árið 2018 var eldhúsinnrétting endurnýjuð. Falleg hvít innrétting og eyja með barborði.
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi. Nýlegar hillur og skúffur eru á einum vegg í herberginu.
Við hlið hjónaherbergis er lítið herbergi sem mætti nýta sem fataherbergi eða skrifstofu (geymsla samkvæmt teikningu).
Baðherbergi: Baðherbergið var endurnýjað að hluta til árið 2024. Baðkar með sturtu í. Gólf er flotað. Gluggi er á baðherbergi.
Framkvæmdir utanhúss:
Árið 2023 voru frárennslislagnir endurnýjaðar og sett dren við húsið. Árið 2017 var skipt um járn á þaki hússins (og pappa) og kvistir endurnýjaðir. Á árunum 2007-2010 var húsið endursteinað. Árið 2024 voru raflagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar.
Mjög falleg íbúð á vinsælum stað í göngufjarlægð frá miðbænum, Klambratúni og Kjarvalsstöðum. Stutt er í verslanir og alla helstu þjónustu.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. okt. 2021
37.250.000 kr.
47.200.000 kr.
76.7 m²
615.385 kr.
12. jún. 2018
32.550.000 kr.
34.500.000 kr.
76.7 m²
449.804 kr.
21. nóv. 2013
18.300.000 kr.
21.200.000 kr.
76.7 m²
276.402 kr.
25. ágú. 2011
15.350.000 kr.
18.900.000 kr.
76.7 m²
246.415 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026