Lýsing
Virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð ásamt stæði í bílageymslu. Glæsilegt útsýni og aukin lofthæð í íbúðinni. 2 rúmgóð svefnherbergi og góðar suðursvalir. Glæsilegar innréttingar og gólfefni. Þvottahús innan íbúðar. Sameign snyrtileg. Stutt að keyra inn í hverfið.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 100,6 fm. Íbúð er 92,7 fm og sérgeymsla 7,9 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 eða sveinn@landmark.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur og harðparket á gólfi. Sérsmíður skóskápur með spegli fyrir ofan.
Miðrými: Harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Afar rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum með glæsilegu útsýni. Harðparket á gólfi. Útgengt á góðar suðursvalir.
Eldhús: Glæsileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Eldunareyja með háf yfir. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð herbergi, bæði með fataskáp og harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Flísalögð sturta aðskilin með öryggisgleri. Falleg innrétting í kringum handlaug, spegla skápar yfir. Upphengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi þar inni.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur í borðplötu.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Stæði í bílageymslu, búið að leggja rafmagn að bílastæði fyrir hleðslustöð.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat