Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
fjölbýlishús

Eiðistorg 13

170 Seltjarnarnes

65.000.000 kr.

682.773 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2067335

Fasteignamat

66.850.000 kr.

Brunabótamat

47.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1985
svg
95,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna: Rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Eiðistorg.
 
                       **PANTIÐ SKOÐUN Í SÍMA 771-5600 / Rúnar Örn**
**EIGNIN STENDUR AUÐ OG GETUR VERIÐ AFHENT STRAX VIÐ KAUPSAMNING**


Björt og vel skipulögð íbúð á fjórðu hæð með sólskála og sólríkum svölum í þessu lyftuhúsi við Eiðistorgið.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 95,2 m², þar af er rúmgóð geymsla í sameign skráð 8,1 m².
Mögulegt er að stúka af aukaherbergi í stofu með tveim léttum milliveggjum.

Lýsing íbúðar:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er í rúmgóðu, björtu og fallegu parketlögðu rými, góðir gluggar og útgengt í góða yfirbyggða flísalagða sólstofu.
Eldhús tengist stofu með borðkrók/borðstofu og er þannig hluti af alrými íbúðarinnar. Innrétting er hvít og viðarlit. Opnanlegur þakgluggi í eldhúsi.
Svefnherbergi rúmgott, með góðum nýlegum skápum og parketi á gólfi. Útgengt á sólríkar svalir úr herberginu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með vaskinnréttingu,walk-in sturtu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur þakgluggi.
Nýlegt viðarparket er á öllum rýmum íbúðarinnar, nema á baðherbergi, forstofu og sólskála.

Sameign
Sameiginlegt þvottahús fyrir Eiðistorg 13 og 15 er á hæðinni (sameiginlegar vélar) til notkunar fyrir íbúa.
Í sameign hússins í kjallara eru sérgeymslur, ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Innangengt er úr stigagangi inn í verslunarmistöðina við sjálft Eiðistorgið.
Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni. Einnig eru gestastæði við húsið, og nóg af öðrum bílastæðum í kringum húsið.

Hér er um að ræða rúmgóða íbúð miðsvæðis í vel staðsettu lyftuhúsi við Eiðistorg. Stutt er í helstu þjónustu á Eiðistorgi og þar í kring.
Í tíð fyrri eigenda var stúkað af aukaherbergi í stofunni, og er auðvelt að gera síkt aftur með tveimur léttum veggjum.

Íbúðin er tóm og tilbúin til afhendingar strax við kaupsamning sé þess óskað.
Til eru myndir af íbúðinn áður en hún var tæmd, ef óskað er eftir að sjá hvernig íbúðin leit út með húsgögnum.
 

Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. maí. 2020
43.650.000 kr.
42.300.000 kr.
95.2 m²
444.328 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone