Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kristnibraut 75

113 Reykjavík

98.600.000 kr.

827.876 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2264260

Fasteignamat

78.700.000 kr.

Brunabótamat

57.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
119,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: 

Í einkasölu virkilega fallega, bjarta og afar vel skipulagða 4ra herbergja 119,1 fm íbúð á 1. hæð með rúmgóðri afgirtri verönd á eftirsóttum og fallegum útsýnisstað í Grafarholti.
Um er að ræða sérstaklega fallega og vandaða eign þar sem mikið hefur verið lagt upp úr endurbótum og fallegu heildaryfirbragði. Íbúðin hefur fengið mjög fallegt eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum, glæsilegt baðherbergi, nýlega fataskápa og falleg gólfefni, parket og flísar. Stofa og borðstofa eru bjartar og sjarmerandi og mynda fallegt alrými með góðri tengingu við útisvæðið. Stór og skjólgóð afgirt verönd með heitum potti og grillaðstöðu er síðan einn af stærri kostum eignarinnar.
Eignin Kristnibraut 75, 113 Reykjavík, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðarréttindi. Fastanúmer eignar: 226-4260.

Ásett verð: 98.600.000 kr.

"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"

"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"

Sölupunktar eignar:
  • Einstaklega falleg og björt 4ra herbergja íbúð á 1. hæð.
  • Mjög fallegt eldhús með nýlegri innréttingu, eyju og miklu skápaplássi.
  • Smekklega endurnýjað og glæsilegt baðherbergi.
  • Nýlegir fataskápar og falleg gólfefni, parket og flísar.
  • Stór og skjólgóð afgirt verönd með heitum potti og grillaðstöðu.

Eignin skiptist í:
Forstofu, sjónvarpshol, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergisgang, baðherbergi, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, þvottaherbergi og geymslu í kjallara.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með fataskáp.
Eldhús:Eldhúsið er einstaklega fallegt og vel hannað með nýlegri eldhúsinnréttingu, nýlegum tækjum, innbyggðri uppþvottavél, miklu skápaplássi og rúmgóðri eyju sem nýtist afar vel í daglegu lífi. Glerklæðning við vinnuaðstöðu setur nútímalegan og snyrtilegan svip á rýmið.
Borðstofa: Parketlögð, björt og með gluggum í tvær áttir. Úr borðstofu er gengið út á rúmgóða afgirta verönd með fallegu útsýni sem skapar skemmtilega framlengingu á alrými íbúðarinnar.f
Stofa: Björt, hlýleg og einstaklega sjarmerandi stofa sem myndar notalega heild með borðstofu og eldhúsi.
Sjónvarpshol: Opið og bjart sjónvarpshol sem nýtist mjög vel sem sjónvarpsaðstaða og notalegt fjölskyldurými.
Gangur: Rúmgóður og bjartur gangur.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, fallegri innréttingu, rúmgóðri sturtu með glervegg, upphengdu salerni og handklæðaofni. Baðherbergið er einstaklega glæsilegt og í nútímalegum stíl.
Hjónaherbergi: Rúmgott og fallegt herbergi með stórum fataskáp á heilum vegg, gluggum í tvær áttir og fallegu útsýni.
Barnaherbergi I: Fallegt svefnherbergi, parketlagt með fataskáp og fallegu útsýni.
Barnaherbergi II: Rúmgott, parketlagt, fallegt herbergi með fataskáp og útsýni.
Þvottaherbergi: Flísalagt og snyrtilegt með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skápapláss.
Verönd: Stór, skjólgóð og afgirt verönd með fallegu útsýni sem er einn helsti kostur eignarinnar. Veröndin nýtist afar vel til útiveru og skapar skemmtilega framlengingu á alrými íbúðarinnar.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 8 fm að stærð, með máluðu gólfi og hillum.
Í kjallara er einnig sameiginleg hjólageymsla með aðgengi að utan.
Lóðin er fullfrágengin með tyrfðum flötum, góðri aðkomu og fjölda bílastæða. Tengi er fyrir rafbíla á sameiginlegu stæði.
Staðsetning:
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Grafarholti þaðan sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og fallegar gönguleiðir. Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign á vinsælum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu og útivist.

Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu. Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. mar. 2024
70.900.000 kr.
74.000.000 kr.
119.1 m²
621.327 kr.
14. okt. 2022
50.400.000 kr.
79.550.000 kr.
119.1 m²
667.926 kr.
19. maí. 2017
34.400.000 kr.
46.000.000 kr.
119.1 m²
386.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ