Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ársalir 3

201 Kópavogur

89.900.000 kr.

727.935 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2247284

Fasteignamat

84.650.000 kr.

Brunabótamat

64.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
123,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir mjög bjarta, fallega og einstaklega rúmgóða 3ja - 4ra herbergja íbúð á annari hæð í eftirsóttu 12 hæða fjölbýlishúsi með tveim lyftum á mjög góðum stað við Ársali Kópavogi. Samkvæmt HMS er íbúðin 123,5 fermetrar og þar af er geymslan 8,3 fermetrar.

Sér þvottaherbergi er innan eignar og út frá stofu eru stórar yfirbyggðar svalir sem eru með fallegu útsýni. Möguleiki er að bæta við þriðja svefnherberginu í eigninni. Næg bílastæði eru við húsið sem hefur hlotð gott viðhald og er nýbúið að yfirfara lyfturnar og setja nýjan mynddyrasíma. 


Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur, flísar á andyri og er með tveim lyftum. 
Forstofa, flísalögð með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc, sturtuklefi, innrétting og skápur.
Gangur, parketlagður.
Hjónaherbergi, parketlagt með fataskápum.
Barnaherbergi, parketlagt með fataskáp.
Stofa / borðstofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á rúmgóðar flísalagðar svalir með svalalokun. 
Eldhús, parketlagt með fallegum viðarinnréttingum, rafmagnshelluborði, tengi fyrir uppþvottavél, nýjum ofn í vinnuhæð, rúmgóðri borðaðstöðu og þvottaherbergi inn af.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, innréttingar eru undir vélar, skápur og vaskur.

Í kjallara:
Sérgeymsla, 8,24 fermetrar, máluð gólf og hillur.
Sameiginlegrar hjóla- og vagnageymsla ásamt sorpgeymslu.

Húsið, er byggt 2001 er í góðu ástandi og hefur alltaf hlotið gott viðhald. Sameignin er einnig öll mjög snyrtileg og vel umgengin.

Lóðin, góð aðkoma er að húsinu með hellulögðum stéttum og sameiginlegum bílastæðum. Stór garður er við húsið með tyrfðum flötum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað. Stutt er í leikskóla, skóla, verslun og aðra þjónustu ásamt sundlaug.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. maí. 2013
26.200.000 kr.
29.400.000 kr.
123.5 m²
238.057 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone