Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kelduhvammur 7

220 Hafnarfjörður

91.900.000 kr.

658.781 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2076826

Fasteignamat

81.050.000 kr.

Brunabótamat

72.770.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
139,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 9. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

** OPIÐ HÚS ** Kelduhvammur 7 - Verið velkomin í opið hús fimmtudaginn 9. apríl kl. 17:00 - 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir:
Vel skipulögð og björt neðri sérhæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu í Hafnarfirði. Eignin í heild er skráð 139,5 fm, og skiptist í íbúð á hæð 117,0 fm og bílskúr 22,5 fm. 
Eignin skiptist í forstofu, hol, opið eldhús og rúmgóða borðstofu og stofu með góðu útsýni til norðurs. Frá holi er einnig gengið inn á herbergisgang þar sem eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og innangengur skápur. Þvottahús er innaf eldhúsi og geymsla er í óskráðu rými undir bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.


Nánari lýsing: 
Forstofa: Sérinngangur er í íbúðina, í forstofu er flotað gólf.
Hol: Opið hol með fataskáp.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi. Parket á gólfi.
Þvottahús: Innaf eldhúsi. Innrétting fyrir þvottavél- og þurrkara í vinnuhæð. 
Stofa- og borðstofa: Mikið og fallegt útsýni í átt að gamla bænum í Hafnarfirði og að Esju. Frá stofu er gengið út á svalir sem snúa í suð-vestur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápar.
Herbergi II: Parket á gólfi
Herbergi III: Parket á gólfi og fataskápur.
Innangengur fataskápur: Innaf herbergisgang er innangengur fataskápur með miklu skápaplássi.
Bílskúr: með rafmagni, heitu- og köldu vatni og er staðsettur fjær aðalinngang til vinstri séð út frá götu. 
Sameiginlegt óskráð geymslurými er staðsett undir bílskúr, þar sem geyma má hjól o.fl. 

Björt og vel skipulögð sérhæð í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu. Þrjú svefnherbergi á sér herbergjagangi. Sérinngangur og bílskúr. Mikið og fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.


Að sögn fyrri eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðhald: 
Árið 2024: Settur nýr ofn inn í stofu í apríl. Svalir múraðar og svalagólf málað í maí.
Árið 2023: Brenndur var pappi á bílskúrsþakið um sumarið, þá voru tröppur múraðar um sumarið. 
Árið 2022: Skipt var um norðurglugga í stofu og inn á baðherbergi sumarið 2022.
Útveggir eignar málaðir um sumarið. 
Ártal óþekkt: Eldhúsið endurnýjað, parketlagt í eldhúsi og stofu, ásamt því að þvottahús var fært til og auka herbergi útbúið í rýminu þar sem þvottahús var áður.
Að sögn núverandi eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðhald:
Okt 2025: Ofnalagnir og ofnar svefnherbergisálmu endurnýjaðir.
Okt 2025: Hitagrind í hitakompu húss endurnýjuð
Sept 2025: Viðgerð og málun á þaki, þakkanti (járnklæðningu) og skipt um rennur.
Okt 2024: Gler stærsta suður stofuglugga endurnýjað.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar og eru eftirfarandi lyklar til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. sep. 2024
73.600.000 kr.
82.000.000 kr.
10201 m²
8.038 kr.
19. ágú. 2022
52.300.000 kr.
78.000.000 kr.
139.5 m²
559.140 kr.
12. jún. 2017
34.300.000 kr.
43.250.000 kr.
139.5 m²
310.036 kr.
13. sep. 2007
22.480.000 kr.
27.200.000 kr.
139.5 m²
194.982 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone