Opið hús að Drápuhlíð 21 í Reykjavík, sérinngangur í kjallara, mánudaginn 13. apríl 2026 á milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Björt og falleg 2-3ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara í eftirsóttu hverfi við Drápuhlíð 21 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, mjög rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott hol og sérgeymsla og þvottahús í sameign.
Falleg og vel skipulögð eign á eftirsóttum og barnvænum stað í Hlíðunum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, leik- og grunnskóla.
Eignin er skráð 76,5 fm skv HMS og skiptist í íbúð 74,5 fm og geymslu 2 fm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fallegum flísum á gólfi, innangengt úr forstofu í sameign.
Stofu/borðstofu hefur verið skipt upp í tvennt með léttum vegg til að útbúa aukaherbergi, ekkert mál að taka hann niður aftur, parket á gólfi og stór gluggi.
Eldhús er rúmgott og bjart með eldri innréttingu sem búið er að lakka, endurnýjaðri borðplötu og blöndunartækjum, flísar á milli efri og neðri skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu með góðum speglaskáp og baðkar með sturtugleri.
Hol tengir saman rými íbúðarinnar, rúmgott og er nýtt sem sjónvarpshol í dag, parket á gólfi.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign, að hluta til undir stiga.
Þvottahús er í sameign, mjög rúmgott.
Skv upplýsingum frá húsfélagi þá er búið er að drena kringum húsið og endurnýja frárennslislagnir undir húsi og taka þær beint út út húsi og leggja þær meðfram húsinu og út í brunn. Einnig er búið að múrviðgera húsið og endurnýja rafmagnstöflu í sameign.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat