Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Uglugata 4

270 Mosfellsbær

94.900.000 kr.

764.706 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2361618

Fasteignamat

84.100.000 kr.

Brunabótamat

73.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
124,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Uglugötu 4 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 124,1 m2, þar af íbúð 107,0 og geymsla 17,1 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Rúmgóðar og skjólsælar svalir í suðurátt með svalalokun og fallegu útsýni yfir m.a. Úlfarsfell og Bláfjöll. Fallegar innréttingar frá Parka. Tvö sérmerkt bílastæði á bílaplani. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga.
 
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús er með fallegri innréttingu eyju. Í innréttingu er vaskur, blástursofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir í suðurátt með svalalokun. Gólfefni (svalakerfi) frá Sögin ehf. Svalirnar eru um 17 m2 (eru ekki í fermetratölu íbúðarinnar).
Sérgeymsla í kjallara er mjög rúmgóð og með glugga. Er skráð 17,1 m2.

Annað: Uglugata 2-4 er tveggja hæða fjölbýlishús ásamt geymslukjallara. Húsið er mestu leiti einangrað og álklætt að utan. Eignin skiptist í tvo opna stigaganga með fjórum íbúðum í hvorum stigagangi, samtals átta íbúðir. Upphituð stétt er fyrir framan og aftan hús. Húsið er hannað með tilliti þess að sameiginlegur rekstrar-og viðhaldskostnaður sé sem minnstur. Í stað sameiginlegs rýmis fyrir hjól og vagna eru stórar sérgeymslur í kjallara. Á lóð eru stæði fyrir 16 bíla og hefur húsfélagið merkt tvö stæði fyrir hverja íbúð. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (Krark) og byggt af Hörðuból ehf.

Verð kr. 94.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. des. 2018
44.000.000 kr.
51.700.000 kr.
124.1 m²
416.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ