Opið hús: Þrastarhöfði 6, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 03 03 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 20. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og mikið endurnýjuð 116,1 m2, 4ra herbergja íbúð með fallegu útsýni á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Þrastarhöfða 6 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 116,1 m2, þar af íbúð 108,5 m2 og geymsla 7,6 m2. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gang og forstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Um er að ræða íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskóla, Lágafellssundlaug og World Class, en auk þess er golfvöllur í næsta nágrenni.
Skv. upplýsingum frá seljanda var nýlega: Skipt um parket og flísar á gólfum, baðherbergið endurnýjað, eldhús endurnýjað, settur upp veggur milli herbergja og stofu ásamt því útbúa þar skrifborðsaðstöðu. Einnig er búið að lakka hurðir og fataskápa.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Gangur er með parket á gólfi með fataskáp og skrifborðsaðstöðu.
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt.
Eldhús er inn af stofu og með parket á gólfi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vaskur. Einnig er innbyggður lítill ísskápur.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Á baði er 'walk in' sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar og með flísum á gólfi, skápum og vinnuborði.
Sérgeymsla er í kjallara með hillum sem geta fylgt. Er skráð 7,6 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Verð kr. 93.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.