Opið hús: Þrastarhöfði 6, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 03 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Vel skipulögð 91,5m2 þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með fallegu útsýni við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, svalir og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fataskápum, flísar á gólfi
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðu skúffu- og skápaplássi. Blástursofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og innbyggð uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa í opnu rými. Úr stofu er fallegt útsýni en þaðan er einnig útgengt út á svalir sem snúa í suð-vestur.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum.
Barnaherbergi: Gott svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, "walk-in" sturta, handklæðaofn, upphengt klósett og innrétting með handlaug og skápum.
Þvottahús: Flísar á gólfi, ræstivaskur, rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Eigninni tilheyrir geymsla á jarðhæð hússins, skráð 7,5m2
Sameign: Í sameign hússins er hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er einstaklega vel staðsett og stutt í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, sundlaug, líkamsrækt, matvöruverslanir, Golfklúbb Mosfellsbæjar, Blik Bistro og fleira.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða jonoskar@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat