Opið hús: Orrahólar 7, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 18.maí frá kl. 17:30-18:00
Lýsing
Eignin Orrahólar 7 er skráð á 1.hæð sem 2 herbergja íbúð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu. Birt stærð 71.8 fm þar af 4,3 fm geymsla. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð.
Söluyfrlit
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór, Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123 tölvupóstur bjarklind@borgir.is
Frábær fyrstu kaupar eign
1 Svefnherbergi
Tengi fyrir þvottavél inná baðherbergi
Stæði í bílageymslu
Rúmgóðar svalir með svalalokun, sem snúa í suður.
Húsvörður sem sér um alla þjónustu
Geymsla: í kjallara, með hillum sem fylgja.
Parketið er nýlega pússað og lakkað. Afhending getur verið við kaupsamning eða stuttu eftir.
Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign ásamt þurrkherbergi fyrir þvott.
Snyrtileg lóð með hellulagðri stétt, sérmerkt bílastæði í bílageymslu, anddyri niðri flísalagt, teppi á hæðinni og nýlegur dúkur á stigahúsi aðkoman að húsinu og í stigahúsi er öll til fyrirmyndar með starfandi húsverði. Í sameign hússins er nýleg rafmagnstafla.
Umhverfi: Eignin er á góðum stað í Breiðholtinu. Í nágrenninu er verslun (Bónus), íþróttarsvæði, sundlaug, grunn-, leik- og fjölbrautarskóli allt í göngufæri ásamt fallegum útivistar- , göngu- og hjólaleiðum. Stutt í Elliðaárdalinn.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.