Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Árni Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1982
232,5 m²
7 herb.
3 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Opið hús: 10. maí 2026
kl. 14:00
til 15:00
Opið hús, einbýlishúsið að Brekkulandi 8 í Mosfellsbæ, verður sýnt sunnudaginn 10. maí n.k. milli kl. 14:00 og 15:00. Leyfi fyrir hænur og gott vinnupláss. Finnbogi Kr. lögg. fast. sýnir: finnbogi@fron.is 897-1212
Lýsing
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Einbýlishús, við Brekkulandi 8 í Mosfellsbæ. Húsið er á tveimur hæðum, með stórum sérstæðum bílskúrum/vinnurýmum. Húsið er staðsett á rólegum stað fyrir ofan Álafosskvosina. Í heild er húsið, með skúrum 277,5 fm. Þar af er 60,2 fm bílskúr byggður 1985 og 45 fm ný byggð vinnustofa um, byggð 2025. Íbúðarhúsið er 172,3 fm. Rúmgóð,1.422 fm eignarlóð.Húsið er byggt úr timbri, frá árinu 1982. Það er vel skipulagt og samanstendur meðal annars af
fimm herbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, búri, sjónvarpsholi, bjartri stofu og borðstofu. Útgengt
er út á sólpall í suðvestur. Lóðin er afgirt, skipt upp með ,,hundagirðingu". Á lóðinni stendur
lítill hænsnakofi, sunnan megin, með netbyrgi fyrir hænsnin. Há tré eru í garðinum sem eru
hæfilega staðsett þannig að ekki er um birtuskerðingu að ræða. Leiktæki eru í garðinum og
sandkassi. Stórt malbikað bílaplan fyrir framan bílskúra. ( 4x bílastæði).
Eignin er einstaklega vel staðsett innan hverfisins með (óbyggðu svæði bak við hús). Gott
útsýni í flestar áttir. Róleg, barnvæn staðsetning í rótgrónu hverfi (Álfosshverfið). Hentar vel fyrir
fjölskyldufólk með hunda ,,léttan iðnað" eða listafólk, með ,,föndur" heima við. Leyfi fyrir
hænsni á lóð.
Nánari lýsing:
Gengið er frá götu, meðfram húsinu, á milli bílskúrs og húss, að aðalinngangi hússins.
Anddyri, inn í neðri hæð húss, sem er flísalagt með fataskáp og fatahengi .
Gestasnyrting með sturtuklefa og klósetti, inn af anddyri. Það er flísalagt.
Miðgangrými/hol með harðparket á gólfi. Þar er vegghengdur skenkur. Á móti er gengið upp
stiga á efri hæð.
Forstofuherbergi, notað sem skrifstofa í dag með harðparketi.
Stofan er þar næst, má skipta í tvö rými, með harðparketi á gólfi. Gengið þaðan út á
sólpall/verönd í suð-vestur.
Við enda verandar, sunnan megin, er heitur pottur með skjólveggjum í kring. Ganga má
þaðan út í garð í suður.
Bjart eldhús er í austurhluta húss, með viðarinnréttingu, með flísum á milli skápa. Span helluborði
með viftu fyrir ofan og bökunarofni fyrir neðan. Borðstofukrókur er frekar stór. Pláss er fyrir
tvöfaldan ísskáp.
Þvottaherbergið er frekar rúmgott, með máluðu stein gólfi. Þar eru innréttingar og skápar.
Inn af því er búr með hillum og góðu hilluplássi. Frá þvottahúsi er smá bíslag með fataskáp.
Hægt er að ganga þaðan út í bakgarð.
Efri hæð:
Notalegt stofa sem er í miðrými með parketi á gólfi. Þar er kvist gluggi í suður með útsýni yfir bæinn.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta á veggjum, innréttingar, baðkar, gluggi.
Hjónaherbergi, snýr í suð-vestur, með parketi á gólfi ágætum fataskápum. Þar er
útgengi út á stórar suð-vestursvalir með útsýni. Við hliðina er er eitt vinnuherbergi/svefnherbergi með
fataskápum. Er í dag notað sem skrifstofa.
Í austur enda eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. (bara fataskápur í
öðru herberginu)
Húsið er byggt með kraftsperrum og er efrihæðin að hluta undir súð, sem þýðir meira
gólfrými en fm segja til um.
Rúmgóður 60 fm bílskúr, með öflugri bílalyftu. Þar er góð vinnuaðstaða. Tvær
bílskúrshurðir. Önnur hurðin er dregin upp en hin hurðin er með gluggum og opnast til hliðar.
Sér inngangur á hlið í skúrinn. Um 8 fm geymsluskúr er bak við bílskúr.
Um 45 fm vinnustofa með bílskúrshurð að framan og gengt út í
bakgarð um sér hurð að aftan. Hlaðinn veggur frá honum í bakgarði. Það er mikið pláss á lóð og
niður með að austanverðu lóðinni sem er ,,hlutlaust rými" í eigu bæjarins og er opið við
lóðina.
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. sep. 2019
70.800.000 kr.
83.000.000 kr.
232.5 m²
356.989 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026