Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
177,9 m²
svg
4 herb.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Höfum fengið til sölu íbúð 301 sem samanstendur af þremur íbúðareiningum þ.e. fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð, tveggja herbergja íbúð í risi og þriggja herbergja íbúð í bílskúr. Eignin er vel staðsett í vestubæ Reykjavíkur, steinsnar frá Ægissíðunni, stutt frá Háskóla Íslands, Hagaskóla, Melaskóla, Háskólabíó og í göngufæri við miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða áhugaverðan fjárfestingakost. Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin er skráð skvþ Þjóðskrá Íslands alls 177,9 fm. og þar af er íbúð á 3. hæð 84,7 fm. og ris eða geymsla 35,2 fm. og bílskúr 35,2 fm. 

Íbúð á 3. hæð merkt 01-0301. 

Fjögurra herbergja íbúð sem skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Útgengi á litlar svalir sem snúa inn í portið. Parket er á gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt. Eldhús er með hvítri innréttingu, bakarofni, keramikhelluborði og háfi úr burstuðu stáli. Borðkrókur í eldhúsi. Úr eldhúsi er opið inn í stofu. Baðherbergi er með flísum á gólfi og í sturtu, salerni, handlaug, tengi er fyrir þvottavél. 
Risíbúð (geymsla) merkt 01-0401. 
Tveggja herbergja risíbúð sem skiptist í svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og alrými. Harðparket er á gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt. Gengið er inn í alrými, þar innaf er eldhús krókur með hvítri innréttingu, eldavél og bakarofni.  Svefnherbergi er rúmgott. Baðherbergi er með flísum á gólfi og í sturtu, salerni, handlaug með skáp undir og tengi er fyrir þvottavél. 
Bílskúr merkt 70-0101. 
Þriggja herbergja íbúð sem skiptist í anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Eikarparket er á gólfum nema á baði og anddyri sem er flísalagt. Komið er inn í anddyri og gengið í opið rými eldhúss og stofu. Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með eikar borðplötum og innbyggðu ljósum í efri skápum. Svefnherbergin tvö eru nokkuð rúmgóð. Baðherbergi er með flísum á gólfi og í sturtu, upphengdu salerni og handlaug. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara og er vinnuborð yfir. Um er að ræða mikið endurnýjaða eign með breyttri notkun sem íbúð, mjög snyrtileg og björt. Góð verönd er fyrir framan bílskúr. 

Húsið virðist í ágætu standi en bílskúr er mikið endurnýjaður með nýlegum gluggum og útidyrahurð. Bílastæði fyrir framan 6,6 x 6,0 er sérafnotaflötur bílskúrs en umferðarréttur allra. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. okt. 2015
44.700.000 kr.
105.000.000 kr.
234 m²
448.718 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík