Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
einbýlishús

Iðutún 2

550 Sauðárkrókur

104.000.000 kr.

422.078 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2337191

Fasteignamat

103.050.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2021
svg
246,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Iðutún 2, Sauðárkróki, ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Nýlegt og vel skipulagt, sex herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr, alls 246,4 fm.
Íbúðarhúsið er skráð 196,5 fm. og bílskúr 49,9 fm. Um er að ræða timburhús byggt árið 2021.
Leigulóð hússins er 870 fm. 
Fasteignin er skráð á byggingarstig B3 - tilbúið til innréttinga.
Fasteignin afhendist í því ástandi sem hún er.

Fasteignin skiptist í 5 svefnherbergi, fataherbergi, stofu og eldhús í sama rými, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús, forstofu og bílskúr. 

Forstofa er flísalögð og með góðum skápum.
Eldhús og stofa er í sama rými. Parket á gólfi. Dökk viðarinnrétting með dökkri harðplast borðplötu frá Kvikk. Mikið skápapláss. Tveir bakaraofnar frá Siemens, annar er jafnframt örbylgjuofn. Helluborð og innbyggð uppþvottavél frá Rafha. Vínskápur í innréttingu. Ísskápur fylgir. 
Stærra baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum. Dökk viðarinnrétting við vask, baðkar og upphengt salerni. Frá baðherberginu er hurð út á pall. 
Á minna baðherberginu eru flísar á gólfi og veggjum, dökk innrétting frá Byko við vask, walk-in sturta með dökku sturtugleri og upphengt salerni. 
Sjónvarpshol er parketlagt. 
Herbergi eru öll parketlögð og með skápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með góðu skápaplássi og snyrtiborði.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með miklu skápaplássi og vaski. Frá þvottahúsi er innangengt í bílskúr. 
Bílskúr er rúmgóður. 

Innréttingar í eldhúsi, stóra baðherberginu, þvottahúsi og skápar í herbergjum og forstofu er frá Kvikk.
Gólfefni og innréttingar eru frá Birgisson.
Gólfhiti er í húsinu en ekki búið að tengja gólfhitastýringu en hún fylgir. 
Helluborð, uppþvottavél og vínskápur frá Rafha.
Bakaraofnar frá Siemens.
Sturtugler, blöndunartæki, salerni og skápur á minna baðherbergi frá Byko.

Loftadúkur er í herbergjum, gangi og forstofu. Það eru jafnframt innfelld ljós.
Að utan er húsið klætt með bárustáli og bambusvið.
Gluggar og hurðir eru frá Idex.


Það efni sem nú þegar hefur verið keypt fyrir þær framkvæmdir sem eftir eru fylgir.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone