Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
einbýlishús

Suðurgata 10

550 Sauðárkrókur

98.000.000 kr.

476.422 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2132272

Fasteignamat

75.350.000 kr.

Brunabótamat

93.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1925
svg
205,7 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu eignina við Suðurgötu 10 ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Mikið endurnýjað fimm herbergja einbýlishús á þremur hæðum ásamt bílskúr. Húsið var byggt árið 1925 og bílskúrinn árið 2005. Snyrtileg eign í góðu ástandi sem hefur verið vel við haldið.

Íbúðarhúsið er skráð alls 141,3 fm. og bílskúrinn 64,4 fm.
Leigulóð hússins er 672 fm.


Íbúðarhúsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 5 herbergi, baðherbergi, sjónvarpshol og snyrtingu. 

Neðsta hæð:
Á hæðinni er baðherbergi, þrjú svefnherbergi og lítil forstofa.
Inngangur er á neðstu hæð þar sem er lítil forstofa
Þrjú parketlögð svefnherbergi.
Baðherbergi
er flísalagt. Baðkar, hvít innrétting og handklæðaofn.Gólfhiti. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi. 
Gangur er flísalagður.
 
Miðhæð:

Á hæðinni er forstofa, eldhús og stofa. Parket er á miðhæð.
Aðalinngangur þar sem komið er inn í forstofu.
Eldhús með hvítri innréttingu.
Stofa er parketlögð með gluggum í suður.
Frá miðhæð er gengið út á pall sem er vestan við húsið. Stigi er frá palli niður á hellulagt svæði. Það við er sólpallur og heitur pottur. 

Efsta hæð:
Á efstu hæðinni eru tvö herbergi, sjónvarpshol og lítil snyrting. Úr sjónvarpsholi er gengið út á svalir sem snúa í austur (ekkert handrið er á svölunum). Á hæðinni er upprunalegt timburgólf.

Bílskúr var byggður árið 2005. Rafmagnsopnari er á bílskúrshurð. Gólfhiti er í bílskúr. Við bílskúr er góður pallur sem snýr í suður.

Garður er skjólsæll og gróinn. Þar er lítill garðkofi.

Árin 1999/2000 var eignin mikið endurnýjuð þar sem skipt var um einangrun í öllum veggjum, auk þess sem neysluvatn, rafmagn og frárennsli var endurnýjað. 
Skipt var um allt járn á þaki skömmu fyrir árið 2000 og var á sama tíma endurnýjað timbur að hluta.
Húsið er steinsteypt með timburgólfi milli hæða.
Skipt var um glugga í forstofu og svalahurð á miðhæð árið 2021.


Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. des. 2019
35.800.000 kr.
22.000.000 kr.
205.7 m²
106.952 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone