Upplýsingar
Byggt 1964
120,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Safamýri 54, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 19. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð 3 herbergja íbúð á 3. hæð ásamt bílskúr í góðu fjölbýli við Safamýri 54, Reykjavík. Um er að ræða eign sem er skráð 120,5 fm og þar af er bílskúrinn 21,4 fm. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús og baðherbergi. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með fataskáp.
Eldhús með viðarinnréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir uppþvottavél. Ísskápur fylgir. Borðkrókur.
Stofan er björt og rúmgóð. Gott pláss fyrir bæði setu- og borðstofu. Stórir gluggar og miklir gluggar. Útgengt á vestursvalir. Fallegt útsýni til vesturs.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting með stórum spegli fyrir ofan handlaug. Salerni og sturtuklefi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergið er rúmgott og án skápa. Búið er að opna úr herberginu inn í litla geymslu innan íbúðar sem mætti nýta undir föt. Herbergið ber auðveldlega góða fataskápa. Útgengt er á svalir frá hjónaherberginu.
Barnaherbergi í fínni stærð án skápa. Á gangi fyrir framan herbergi eru fataskápar.
Gólfefni á íbúð er dúkur fyrir utan baðherbergi en þar eru flísar.
Bílskúr fylgir eigninni en hann er sérstæður í lengju og skráður 21,4 fm. Rafmagn og rafmagnshurðaopnari eru í bílskúrnum.
Íbúðin er staðsett á góðum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskólann Álftaborg og Álftamýrarskóla og íþróttastarf í Víkingsheimilinu. Góðar almenningssamgöngur í nágrenni og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook