Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Hamraborg 32

200 Kópavogur

59.500.000 kr.

851.216 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2061377

Fasteignamat

60.750.000 kr.

Brunabótamat

39.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
69,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 27. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Hamraborg 32, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 11 08 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 27. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Hamraborg 32, 200 Kópavogi;
Bjarta, fallega og rúmgóða 3ja herbergja enda útsýnisíbúð á 8. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk
 miðsvæðis í 200 Kópavogi.
Húsið Hamraborg 32 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár og hafa íbúar þess innangengt aðgengi að stæði í sameiginlegri bílageymslu.

- Birt stærð skv. HMS er 69,9 fm 
- 8. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir
- 3ja herbergja - 2 rúmgóð svefnherbergi
- 2025: Nýr gluggi og svalahurð í hjónaherbergi
- 2025: Nýtt harðparket á bæði svefnherbergin
- 2025: Ný uppþvottavél

- 2018: Húsið múrviðgert og málað (veggir, tréverk, svalahandrið og svalagólf)
- 2018: Skipt var um gler í glugga í stofu.
-Nýleg lyfta.
-Nýlegur myndavéladyrasími í húsinu og eldvarnarhurð inn í íbúð.


Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, parketlagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með ljósri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum og hvítum flísum á milli skápa. AEG helluborð, Whirlpool Star clean ofn og uppþvottavél í vinnuhæð. Möguleiki að hafa þvottavél í eldhúsi.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við eldhús. Parketlögð og björt með stórum gluggum, stórbrotnu óhindruðu útsýni til norðurs.
Svefnherbergi (hjónaherbergi): Af stofu. Parketlagt með skápum. Þaðan er útgengt á suður svalir með óhindruðu útsýni.
Svefnherbergi: Parketlagt með skáp með.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með horn sturtuklefa, salerni, hvítri vaskinnréttingu og nýjum spegla skápum.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á hæðinni með sameiginlegum vélum. Málað gólf og útgengi á rúmgóðar svalir til norðurs. Þvottasnúrur í þvottaherbergi og á svölum.
Sér geymsla: Er í kjallara. Málað gólf og hillur.
Hjóla- og vagnageymsla: Er í kjallara með máluðu gólfi, hjólasnögum og glugga til norðurs.
Bílageymsla: Er í kjallara, innangengt úr lyftu. Gengið inn í hana frá sameign. Sameiginleg stæði í bílageymslu. Aðgangur er tengdur bílnúmeri og er gjaldfrjáls fyrir einn bíl á hverja íbúð. 

Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og fallega, 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi sem hefur fengið gott viðhald með aðgengi að stæði í lokaðri bílageymslu, á besta stað í Hamrborg, 200 Kópavogi.
Góð staðsetning;  Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Kópavogi með fjölbreyttri verslun og þjónustu í kring og Kópavogslaug í göngufæri. Stutt er út á stofnbraut og í Fossvogsdalinn.
Öll skólastig eru í næsta nágrenni; leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli.

Í Geislagarði, sem garður á milli blokkana, eru framkvæmdir í gangi á vegum Kópavogsbæjar sem eru langt komnar, meðal annars endurnýjað drenkerfi og snjóbræðslu, hellulögn, gróður, leiktæki. https://eu-west-2.graphassets.com/A9pITFgTsTbObglL0XJzPz/cmdoqngj0c09o07mu238moa72
Á heimasíðu Kópavogs er fjallað um nýjan miðbæ í mótun, göngugötuna, þjónustu og verslanir. Hér er hlekkur á heimasíðuna: https://midbaer.kopavogur.is/

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. nóv. 2022
40.300.000 kr.
48.000.000 kr.
69.9 m²
686.695 kr.
30. júl. 2021
36.900.000 kr.
45.500.000 kr.
69.9 m²
650.930 kr.
8. feb. 2019
33.850.000 kr.
36.700.000 kr.
69.9 m²
525.036 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone