Erum staðsett í sýningaríbúð á 4. hæð, frítt í bílakjjalara. - verið velkomin kl. 12:00 laugardaginn 30. maí. Jason s. 7751515
Lýsing
SÝNUM SAMDÆGURS
Heimasíða Orkureitsins
Flæði íbúðar:
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Tvennar svalir. Vestur- og norðursvalir, 48 fm þakgarðssvalir, sem útgengt er á úr stofu og frá gangi, með glæsilegu fjalla- og sjávarútsýni. Austursvalir (5,2 fm) sem útgengt er á úr svefnherbergi með útsýni yfir glæsilegan inngarð. Sér þvottahús með innréttingu.
Sérgeymsla (16,5 fm) er í kjallara hússins. Þá fylgir íbúðinni jafnframt 31,2 fm bílskúr í bílakjallara.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.