Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
einbýlishús

Starrahólar 5

111 Reykjavík

169.900.000 kr.

646.499 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2049765

Fasteignamat

135.400.000 kr.

Brunabótamat

121.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
262,8 m²
svg
11 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 28. maí 2026 kl. 17:00 til 18:00

Opið hús: Starrahólar 5, 111 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 28. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

Lýsing

Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Starrahóla 5 í  Reykjavík.
Um er að ræða sérlega glæsilegt einbýlishús á þremur pöllum, með tvöföldum bílskúr á vinsælum stað í botnlangagötu í  jaðarhverfi 109 Reykjavík með óhindruðu útsýni yfir borgina.

 
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er mjög vel skipulagt. Fjögur rúmgóð svefnherbergi (möguleiki á átta herbergjum), stór og björt stofa, glæsilegt útsýni yfir borgina. Vandaður Carrara marmari á gólfum.

Eignin er skráð 262,8 fm á stærð sem skiptast í 218 fm hús og 44,8 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem studíó. Þá er einnig búið að útbúa líkamsræktaraðstöðu með saunaklefa, heitum potti, sturtu og góðu rými fyrir líkamsræktaraðstöðu í óskráðu ca 60 fm rými á millihæð.
Heildareignin er því í raun ca. 322 fm á stærð.

Einbýlishúsið er byggt í hlíð og er á 3 pöllum; Efri-, milli- og neðri hæð: Gengið er inná efri hæð hússins af stórri hellulagðri suðurverönd.

Efri hæð skiptist í : Forstofu, stofur, eldhús/borðstofu, 2 svefnherbergi og gestasalerni.
Forstofa: Marmari á gólfum, fataskápur á heilum vegg. 
Stofa: Tvöföld rúmgóð og björt stofa með uppteknu lofti og bitum. Marmari á gólfi. Útgengi á svalir sem snúa til norðurs með stórglæsilegu óhindruðu útsýni svo langt sem augað eygir.  
Eldhús/borðstofa: Marmari á gólfum. Mjög rúmgott eldhús með U-laga dökkri nýlegri innréttingu. Borðstofan er samliggjandi eldhúsinu og gluggar eftir rýminu endilöngu gefa fallega birtu inn í eldhúsið.
2 svefnherbergi: Annað með marmara á gólfi hitt parketlagt. Vísa út á suðurverönd.
Gestasalerni: Með orginal flísum og vaskinnréttingu. Opnanlegur gluggi.
 
Gengið er niður einkar glæsilegan, marmaralagðan stiga niður á millihæð hússins. Gluggi er á rýminu og gefur góða birtu inn í húsið auk þess sem lofthæðin er góð.

Millihæð: Hjónaherbergi, sjónvarpsrými, baðherbergi, þvottahús og óskráð 60 fm rými með saunaklefa, heitum potti, sturtu og góðu rými fyrir líkamsræktaraðstöðu auk geymslu.
Hjónaherbergi: Parketlagt með skápum og fallegri horngluggasetningu.
Sjónvarpsrými: Marmari á gólfi. Gluggar á heilum vegg. Rýmið er skráð sem vinnuherbergi og er lofthæð ca 220 cm. Fyrir utan herbergið er hellulögð verönd.
Baðherbergi: Flísalagt með upprunalegum flísum og innréttingu, baðkari og salerni. Opnanlegir tveir gluggar.
Þvottahús: Flísar á gólfi, borðplata með vaski. tveir opnanlegir gluggar. Hitagrind og rafmagnstafla eru í þvottahúsi ásamt mótor fyrir rafmagnspott.
Óskráð rými: Gluggalaust, loftræst rými með flísum á gólfi, innbyggður, heitur pottur, saunaklefi (þarf að skipta um ofn). Sérrými með nýlegri „walk in“sturtu , handlaug og hillum. Rúmgóð geymsla er fyrir innan sem hýsir loftræstikerfið fyrir óskráða rýmið.
 
Neðri hæð: Svefnherbergisgangur, 3 barnaherbergi skv. teikningu.
Svefnherbergisgangur: Með marmara á gólfi, tveir útgangar út á hellulagða stétt sem liggur umhverfis húsið og í garðinn að neðanverðu þess.
Barnaherbergi I: Parketlagt með skáp.
Barnaherbergi II og III: Hafa verið sameinuð og eru nú í einu mjög góðu rými. Parketlagt með skáp.

Bílskúr: Tvöfaldur, sérstæður bílskúr.
Hiti, vatn og rafmagn er í bílskúr sem hefur verið að hluta útbúin sem stúdíó. Nýjar raflagnir, sér lekaliði, loftræstinga kerfi og rafmagnstafla. Þar að auki ljósleiðari lagður.
Hiti er í bílaplani auk þess sem hiti er í brekku sem liggur niður í götuna.

Lóðin: Er skráð 885 fm og er að mestu hellulögð að framan og til hliðar við húsið. Töluverður gróður er í baklóðinni og möguleiki til ræktunar.
Hægt er að ganga út í lóðina á amk 4 stöðum úr húsinu og því frábærir nýtingarmöguleikar á henni.
Hitalögn er í bílaplani að framanverðu við húsið. Að aftanverðu er lóðin tyrfð.
 
Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega glæsilegt, rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á vinsælum útsýnisstað í jaðri borgarinnar, með útleigumöguleikum og/eða frábært stórfjölskylduhús með stórum garði og óhindruðu útsýni.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905


2025 Húsið var málað og sprunguviðgert að utan. Gluggar voru einnig málaðir.
2024 Skipt var um eldhúsinnréttingu



 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2019
74.850.000 kr.
89.500.000 kr.
262.8 m²
340.563 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone