Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1995
svg
79,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Eyjavegur 4 Bláskógabyggð. Sumarhús byggt 1995 þá 59,7 fm og ný viðbygging er 19,2 fm. Alls 78,9 fm. Eignarland 7800 fm. Einstök staðsetning við hliðina á golfvellinum í Haukadal. Útsýni að Geysi og fögur fjallasýn.

Húsið hefur fengið ágætt viðhald. Stór sólpallur með heitum potti, útigeymsla og lítið krakkahús á lóð. Töluvert hefur verið gróðursett í lóðina.
Nýtt eldhús og nýtt baðherbergi. öll gólfefni endurnýjuð og endurnýjaður panell á veggjum í alrými. Nýleg öflug varmadæla. Öryggis- og myndavélakerfi. Nýtt parket á öllu svefnloftinu.
Skolplagnir og rotþró endurnýjuð. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og raflagnir yfirfarnar og endurnýjaðar.
  
Innra skipulag. Opin forstofa, hol. rúmgóð og björt stofa og borðstofa, upptekin loft, hurð út á sólpall. Kamína frá Funa. Eldhús með nýrri innréttingu og tækjum í sérrými, (var áður herbergi) Ljós í öllum skápum. Mjög stórt svefnherbergi með nýjum fataskáp (er í nýja hlutanum) Baðherbergi nýtt, stór innrétting og opin sturta, hurð út á sólpall. Tengi fyrir þvottavél. (baðherbergi er í nýja hlutanum)
Svefnloft er stórt, ca 20 gólf fermetrar, nýtt parket. Skráðir fm á svefnlofti eru 5,5 fm. Gistiaðstaða fyrir fjóra er á svefnlofti í dag.
Innbú þ.e. húsgögn borðbúnaður, þvottavél o.fl. fylgir með fyrir utan alla persónulega muni.

Verið er að skrá stækkun hússins og ætti hún að koma inn á fasteignaskrá fljótlega.

Virkilega notalegt hús með fallegu útsýni, við hliðina á golfvellinum.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið skoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. sep. 2014
15.950.000 kr.
11.000.000 kr.
59.7 m²
184.255 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum