Lýsing
Eignin er skráð í Þjóðskrá íslands alls 80,5 fm. og þar af er geymsla 12,1 fm.
Í íbúðinni er hjónaherbergi, eldhús, góð stofa og borðstofa, baðherbergi og sérgeymsla í kjallara og góð sameign.
Nánari lýsing:
Hol með fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús með góðri nýlegri innréttingu, tvennir ofnar í vinnuhæð, helluborð, flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt út á stórar suðursvalir, frábært útsýni yfir bæinn.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni og flísalagðir veggir og gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins með glugga. Í sameign er salerni og vaskur.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sitt tengi og þurrkherbergi í kjallara
Hjóla og vagnageymsla í kjallara hússins. . Öll sameign er mjög snyrtileg.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.