Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Engihjalli 11

200 Kópavogur

56.500.000 kr.

610.811 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2060018

Fasteignamat

58.250.000 kr.

Brunabótamat

52.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
92,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 9. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús á Engihjalla 11, íbúð 6C (606), þriðjudaginn 9. júní, frá klukkan 17:00-17:30. Verið velkomin!

Lýsing

Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Gott útsýni úr borðstofu til norðurs og til vesturs af svölum og eldhúsi. Þrjár hliðar hússins hafa verið lagfærðar með klæðningu að hluta auk þess sem skipt var um glugga í hluta hússins.
Birt stærð íbúðarrýmis er 86,5 fm skv. skráningu HMS og geymslu 6 fm, samtals 92,5 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi, upprunalegur fataskápur.
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf, innrétting og baðkar.
Eldhús: Upprunaleg U-laga innrétting. Flísar á gólfi.
Stofa: björt með útgengt á vestursvalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: upprunalegur fataskjápur og dúkur á gólfi.
Herbergi 2: dúkur á gólfi.
Þvottahús: er sameiginlegt fyrir íbúðir 6 íbúðir á 6. hæð. Sameiginleg þvottavél og þurrkari.
Geymsla íbúðar er í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg á jarðhæð. 

Húsgjöld eru nú samtals 91.315 kr. á mánuði, þar af 50.000 kr. sem verið er að leggja fyrir í framkvæmdasjóð.

Verið er að safna fyrir endurnýjun á vatnslögnum í B-íbúðum hússins (baðherbergjum) og viðgerð á suðurhlið hússins. Líklega verður viðgerð á suðurhlið hússins tekin fyrir á aðalfundi húsfélagsins árið 2027 og þá mögulega frekari ákvarðanir teknar hvað það varðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Afreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti,

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík