Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Bárugata 15

815 Þorlákshöfn

74.900.000 kr.

361.138 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2528238

Fasteignamat

11.200.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
207,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS Fasteignasölu kynna í einkasölu Bárugötu 15 sem er nýtt fimm herbergja einbýlishús í byggingu í nýju íbúðahverfi í Þorlákshöfn.  Húsið er á einni hæð, klætt að utan með grálituðu áli og ljósu járni á þaki sem er hefðbundið niðurtekið kraftsperruþak með valma. Þakkantur er klæddur með áli. Húsið er 207,4 fm að stærð, þar af sambyggður bílskúr 39,7 fm. Húsið selst fokhelt, á byggingarstigi 2.  ( Hægt er að fá húsið tilbúið til innréttinga og fullbúið) Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar. Húsið er vel staðsett, nálægt nýjum leikskóla. 

Nánari lýsing:
Teikningar hússins gera ráð fyrir fjórum svefnherbergjum, anddyri, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, sjónvarpsholi, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og bílskúr. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúr.
Húsið er klætt að utan með lituðu áli og bárujárn er á þaki og þakkantur er klæddur með áli. Gluggar eru ál/tré. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu sem þá gerir ráð fyrir svæðaskiptum gólfhita. Húsið er selt fullbúið að utan og fokhelt að innan skráð á byggingastig 2. samkv IST 51:2021. Lóð er grófjöfnuð og drenmöl í bílaplani. Gert er ráð fyrir heitum potti í garði og ídráttarrör fyrir lagnir til staðar.

Virkilega spennandi eign á fínum stað.

Nánari skilalýsing, teikningar og upplýsingar á skrifstofu fasteignasölunnar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"      
 
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum