Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
einbýlishús

Eyjahraun 34

815 Þorlákshöfn

72.800.000 kr.

493.894 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212250

Fasteignamat

65.400.000 kr.

Brunabótamat

72.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
147,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Eyjahraun 34, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða gott og vel staðsett 4ra herbergja einbýlishús með bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá 147.4 fm, þar af er íbúðarhluti 117.4 fm. og bílskúr 30 fm. Umhverfis húsið er einstaklega glæsilegur stór gróinn garður með stórum suðurvestur sólpalli. 

Eignin skiptist í anddyri / forstofa, í alrými er stofu / borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi, gang, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, tvær geymslur og bílskúr. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing eignar:
Anddyri / forstofa: Komið er inn í flísalagt anddyri og þaðan gengið inn í flísalagða forstofu.
Stofa / borðstofa: Í alrými er björt og rúmgóð parketlögð stofa. Úr stofu er útgengt út á stóran suðvestur sólpall.
Eldhús: Góð innrétting, borðkrókur, helluborð og háfur, bakarofn og örbylgjuofn, ísskápur sem getur fylgt með, innbyggð uppþvottavél, flísar milli skápa, flísar á gólfi.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er gengið inn þvottahús, vaskur og vinnuborð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, útgengi inn í anddyri, flísaplötur á veggjum og dúkur á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Gott herbergi, parket á gólfi. 
Gangur: Parketlagður gangur með skápum.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, baðker með sturtu, flísalagt í hólf og gólf. 
Gestasalerni: Inn af forstofu, innrétting og speglaskápur með ljósum, flísaplötur á veggjum og flísar á gólfi. 
Geymslur: Inn af forstofu er góð geymsla sem hægt er að nýta sem herbergi. Í anddyri er útigeymsla.
Bílskúr: 30 fm. bílskúr, innangengt úr anddyri. 

Húsið: Húsið er timburhús sem byggt er 1973 og bílskúrinn 1977. Nýtt þakjárn er á bílskúr og þakjárnið var endurnýjað á húsinu fyrir nokkrum árum. Húsið var málað að utan 2025. Gluggar og gler var endurnýjað ca. 2003. 
Lóðin: 862 fm lóð í Eyjahrauni. Einstaklega fallegur gróinn garður í jaðri Eyjahrauns. Framan við húsið er steypt stétt að húsi og malbikuð innkeyrsla. Á suðvesturhlið er stór sólpallur með lítilli tjörn og aftan við bílskúr er heitur pottur með hellulagðri stétt með hitalögn undir. Á norðurhlið er lítill trépallur. Á lóðinni er garðhýsin sem nýtt er sem gistirými.  Grænt svæði og göngustígur eru vestan við húsið og nokkuð vegalengd í næstu hús. 

Gott fjölskylduhús með einstaklega fallegum garði á góðum stað í Þorlákshöfn þar sem stutt  er í alla helstu þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla, veslanir og í náttúruna. Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir: Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar og eru leikskólar gjaldfrjálsir. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er nýr leikóli, leikskólinn Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík