Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Uglugata 2

270 Mosfellsbær

98.900.000 kr.

710.489 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2361612

Fasteignamat

87.900.000 kr.

Brunabótamat

84.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
139,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð við Uglugötu 2 í Mosfellsbæ. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð á fjölskylduvænum stað í vesturhlíð Helgafells, með stórum suðvestursvölum, þremur svefnherbergjum og mjög rúmgóðri sérgeymslu í kjallara sem nýtist einstaklega vel sem td. vinnustofa, tómstundarými eða líkamsræktaraðstaða.  Hjólastólaaðgengi

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 139,20 fermetrar, þar af er sérgeymsla í kjallara 33,7 fermetrar.

Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými. Eigninni fylgja einnig rúmgóðar svalir í suðvesturátt og tvö sérmerkt bílastæði á lóð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Lokuð forstofa. Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Parka með góðu skápa- og vinnuplássi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta. 
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými með eldhúsi. Útgengt er úr stofu út á stórar svalir í suðvesturátt.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Innrétting, vegghengt salerni og sturta. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skolvaski.
Sérgeymsla: Mjög rúmgóð sérgeymsla í kjallara, skráð 33,7 fermetrar. Geymslan býður upp á mikla möguleika og getur nýst vel sem vinnustofa, tómstundarými, líkamsræktaraðstaða eða góð almenn geymsla.

Annað: Húsið er tveggja hæða fjölbýlishús með geymslukjallara, byggt árið 2018. Húsið er að mestu einangrað og álklætt að utan og því viðhaldslétt. Lítil sameign er í húsinu og sameiginlegur rekstrar- og viðhaldskostnaður er lágur. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja íbúðinni á lóð.

Staðsetning: Eignin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, Álafosskvosina og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna án þess að fórna góðri þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – 
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. apr. 2022
57.650.000 kr.
83.000.000 kr.
139.2 m²
596.264 kr.
14. sep. 2018
20.750.000 kr.
49.500.000 kr.
139.2 m²
355.603 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður