Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1976
svg
141,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Kjartansgata 29, 310 Borgarnes. 

Um er að ræða mjög fallegt 141,30 fm einbýlishús byggt úr timbri árið 1976. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Borgarnesi, með óhindrað útsýni yfir Borgarvog til vesturs.  Húsið er hæð og kjallari undir hluta,  klætt að utan og vel við haldið.


Nánari lýsing:
Íbúð á hæð skiptist í forstofu, eldhús, 3 svefnherbergi og baðherbergi á svefnherbergisgangi, stofu og sólstofu og vinnuherbergi  ásamt þvottahúsi.
Kjallari er með sérinngangi, skiptist í 1 herbergi snyrtingu og óinnréttaða geymslu. Innangengt í kjallara um timburstiga á gangi.

Anddyri er með rúmgóðum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa og borðsofa mynda opið og bjart alrými ásamt sambyggðri sólstofu.  Parket á stofum en flísar á sólstofu. Fallegur arinn er í horni sólstofunnar og gólfhiti.
Svefnherbergi eru parketlögð og eru skápar í 2 þeirra.
Eldhús er með ljósri innréttingu og borðkrók.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með skápum og vegghengt salerni og handklæðaofn.
Herbergi í kjallara plastparket gólfi.
Snyrting í kjallara dúkur á gólfi.
Sólpallur er við húsið með skjólveggjum.
Garðurinn er fallega hirtur með runnum og margvísleguum gróðri.
 
Góð staðsetning. Stutt í íþróttamannvirki og alla þjónustu sem eru í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

img
Þórarinn Halldór Óðinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone
img

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi